Ráðningar í stjórnunarstörf: Algeng mistök fyrirtækjaeigenda Rakel Sveinsdóttir skrifar 22. september 2020 09:04 Það getur gert hæfan stjórnanda gráhærðan ef eigandinn andar ofan í hálsmálið á viðkomandi alla daga. Vísir/Getty
Stofnendur eða eigendur fyrirtækja eru ekkert endilega þeir bestu til að stýra skútunni í rekstri. Þekking, styrkleikar eða hæfni þeirra getur til dæmis falist í því að fylgja eftir hugmynd þannig að hún verði að veruleika, sem er allt annað en það að vera góður í rekstri og stjórnun. Þegar að því kemur að ráða í fyrstu stjórnunarstörfin hefur fyrirtækjaeigandanum oft dreymt um það lengi. Enda er það lýjandi til lengdar að ganga í öll störf: Sjá um markaðsmálin, sölumálin, fjármálin, mannauðsmálin, þjónustu við viðskiptavini, vöruþróun o.s.frv. En hér þarf að varast algeng mistök. Þau mistök sem sögð eru hvað algengust í stjórnendaráðningum fyrirtækjaeigenda eru eftirfarandi: 1. Að ráða einhvern sem þú þekkir eða er eins og þú sjálf/ur Það er ekkert endilega fyrirtækinu fyrir bestu að ráða fyrsta einstaklinginn í stjórnunarstöðu sem er í raun eins og eigandinn sjálfur. Með svipað viðhorf, reynslu og þekkingu. Frekar ætti að horfa til stjórnanda sem býr yfir styrkleikum á einhverjum öðrum sviðum en eigandinn. Þá er algengt að sá fyrsti sem hlýtur stjórnendatitil innan fyrirtækisins sé einhver sem hefur fylgt fyrirtækinu eftir lengi. Oft eru þetta einstaklingar úr meðstofnendahópi eða starfsmaður sem hefur starfað hjá fyrirtækinu frá upphafi. Þessir aðilar eru þó ekkert frekar en stofnandinn sjálfur, bestu aðilarnir í tiltekin stjórnunarstörf. Í litlum fyrirtækjum er ekki alltaf val um að ráða utanaðkomandi stjórnendur strax. Ef sú er raunin, er gott fyrir fyrirtækjaeigandann að ræða við viðkomandi í upphafi um að stöðuveitingin er hugsuð sem tímabundin. 2. Reynsluleysi í ráðningum Að velja réttan aðila í starf á við um allar ráðningar en hjá stofnendum fyrirtækja gætir oft ákveðið reynsluleysi í ráðningum. Í ráðningu fyrsta stjórnandans inn í fyrirtækið gæti útgangspunkturinn til dæmis verið sá að finna aðila sem er líklegur til að hafa getu til að koma fyrirtækinu á næsta vaxtarstig. Ef svo er, ættu lítil fyrirtæki ekki að ráða til sín stjórnanda sem kemur úr mjög stóru eða fjölmennu fyrirtæki því þeirra stjórnunarreynsla nýtist ekkert endilega vel í fimm manna fyrirtæki í uppbyggingarfasa. Oft er tímaleysi líka um að kenna að ekki er ráðinn besti aðilinn í starfið. Það skýrist einfaldlega að því að þegar loksins er tekin ákvörðun um að ráða í stjórnunarstarfið, er staðan orðin þannig að viðkomandi þarf helst að byrja í gær. 3. Að sleppa takinu Að sleppa takinu reynist oft erfið áskorun fyrir fyrirtækjaeigendur sem eru vanir því að sjá um allt sjálfir eða ráða öllu sjálfir. Fyrir vikið falla margir í þá gryfju að vera með puttana í öllu sem nýi stjórnandinn gerir. Eða það sem verra er: Vilja helst að viðkomandi stjórni eða taki ákvarðanir eins og hann/hún sjálfur hefði gert. Að sleppa takinu er ákvörðun sem fyrirtækjaeigendur þurfa að gera upp við sig áður en ráðning fer fram. Þar er í góðu lagi að gefa sér tíma í að læra að treysta viðkomandi en aðalmálið er þó að gefa nýjum stjórnanda svigrúm til að sanna sig. Það getur gert hæfan stjórnanda gráhærðan ef eigandinn andar ofan í hálsmálið honum upp á hvern dag.
Stjórnun Góðu ráðin Tengdar fréttir Bremsuför og uppvaskið viðkvæm mál á vinnustöðum Bremsuför í klósettinu, mæta alltaf og seint, vaska aldrei upp eða lykta illa eru dæmi um viðkvæm mál á vinnustöðum sem fólk á erfitt með að ræða um. 9. september 2020 10:04 Helstu einkenni og afleiðingar óttastjórnunar á vinnustöðum Ef skaðinn er skeður þarf að hreinsa til í stjórnendahópnum segir Bjarni Snæbjörn Jónsson í viðtali um óttastjórnun á vinnustöðum. Hann bendir hins vegar á að það er ekki alltaf svo að rót vandans liggi hjá stjórnanda. 3. september 2020 09:09 „Vil hvetja stjórnendur að tileinka sér aðferð þríeykisins“ Þríeykið er sannkölluð fyrirmynd í stjórnun segir Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir sem hvetur stjórnendur til að taka upp þeirra aðferðir og hefur trú á því að stjórnunarhæfni þeirra verði rannsökuð í framtíðinni. 2. september 2020 09:00 Atriði sem afkastamiklir stjórnendur í fjarvinnu þurfa að huga að Stjórnendur þurfa að líta aðeins í eiginn barm í fjarvinnu því þeirra hegðun getur haft mikil áhrif á afkastagetu teymisins. 31. ágúst 2020 09:00 Útkoman oft sú að stjórnendur hlusta bara á Já-fólkið Of margir íslenskir stjórnendur hlusta ekki nógu vel. Að því leytinu til eru þeir ekki ólíkir öðrum stjórnendum. Seinni hluti viðtals við Torben Nielsen og Jensínu K. Böðvarsdóttir hjá Valcon. 7. september 2020 09:00 Mest lesið Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Viðskipti innlent Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar Viðskipti innlent 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Viðskipti innlent Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Viðskipti innlent Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Viðskipti erlent Atli Þór til Almannaróms Viðskipti innlent Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga Viðskipti erlent Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Viðskipti innlent Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Viðskipti innlent Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaflaskil í vinnu: Hver er ég eftir uppsögn? Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið 50+ konur eru framtíðin fyrir gjörbreyttan vinnumarkað Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Starfsfólk lagt inn á spítala með AI-geðrof Sjá meira
Bremsuför og uppvaskið viðkvæm mál á vinnustöðum Bremsuför í klósettinu, mæta alltaf og seint, vaska aldrei upp eða lykta illa eru dæmi um viðkvæm mál á vinnustöðum sem fólk á erfitt með að ræða um. 9. september 2020 10:04
Helstu einkenni og afleiðingar óttastjórnunar á vinnustöðum Ef skaðinn er skeður þarf að hreinsa til í stjórnendahópnum segir Bjarni Snæbjörn Jónsson í viðtali um óttastjórnun á vinnustöðum. Hann bendir hins vegar á að það er ekki alltaf svo að rót vandans liggi hjá stjórnanda. 3. september 2020 09:09
„Vil hvetja stjórnendur að tileinka sér aðferð þríeykisins“ Þríeykið er sannkölluð fyrirmynd í stjórnun segir Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir sem hvetur stjórnendur til að taka upp þeirra aðferðir og hefur trú á því að stjórnunarhæfni þeirra verði rannsökuð í framtíðinni. 2. september 2020 09:00
Atriði sem afkastamiklir stjórnendur í fjarvinnu þurfa að huga að Stjórnendur þurfa að líta aðeins í eiginn barm í fjarvinnu því þeirra hegðun getur haft mikil áhrif á afkastagetu teymisins. 31. ágúst 2020 09:00
Útkoman oft sú að stjórnendur hlusta bara á Já-fólkið Of margir íslenskir stjórnendur hlusta ekki nógu vel. Að því leytinu til eru þeir ekki ólíkir öðrum stjórnendum. Seinni hluti viðtals við Torben Nielsen og Jensínu K. Böðvarsdóttir hjá Valcon. 7. september 2020 09:00