Ummæli Trump um veiruna hrella lækna Kjartan Kjartansson skrifar 6. október 2020 12:09 Trump gerði mikið úr því þegar hann sneri aftur í Hvíta húsið eftir sjúkrahúsleguna í gær. Hann var ekki fyrr kominn þangað en hann reif af sér grímuna. AP/Alex Brandon
Lýðheilsu- og faraldsfræðingar eru forviða eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði þjóð sinni að „óttast ekki“ kórónuveiruna og tók af sér grímu þrátt fyrir að vera sjálfur smitaður í gær. Orð og æði forsetans ganga þvert á tilmæli ríkisstjórnar hans vegna faraldursins sem hefur orðið meira en 210.000 manns að bana í landinu. Trump var í gær útskrifaður af Walter Reed-hersjúkrahúsinu þar sem hann dvaldi í þrjár nætur eftir að hann greindist smitaður af kórónuveirunni seint á fimmtudag. Forsetanum var gefið súrefni þegar súrefnismettun í blóði hans féll. Þá voru honum gefin ýmis lyf, þar á meðal sterar og veirulyf. Sneri forsetinn aftur í Hvíta húsið skömmu eftir að hann lýsti því yfir á Twitter að Bandaríkjamenn ættu ekki að óttast veiruna eða láta hana stjórna lífi sínu. Lét Trump mynda sig á tröppum Hvíta hússins þar sem hann reif af sér grímu. Ekki er þó ljóst hvort að Trump hafi náð sér af veikindunum að fullu eða hvort að hann greinist nú neikvæður fyrir henni. Tímasetningar um hvenær forsetinn greindist fyrst smitaður hafa verið á reiki en almennt er talað um að alvarleg veikindi geti komið fram svo seint sem á áttunda til tíunda degi frá smiti. Faraldsfræðingum liggur við uppsölum Einhverjir höfðu vonast til þess að veikindi Trump ættu eftir að breyta afstöðu hans til faraldursins sem hann hefur lagt allt kapp á að gera lítið úr til þessa. Hann myndi jafnvel loksins hvetja fólk til þess að ganga með grímu. Ummæli hans og athafnir í gær kæfðu allar vonir um slíkt. Ekki aðeins tók Trump af sér grímuna heldur gekk hann inn í Hvíta húsið grímulaus. „Hvaða starfsmaður Hvíta hússins ætti að vilja koma í vinnuna á morgun??? Faraldsfræðingar þurfa bara að æla,“ tísti Eric Feigl-Ding, faraldsfræðingur við Samband bandarískra vísindamanna, í gær. TRUMP JUST TOOK OFF HIS MASK ENTERING THE WHITE HOUSE!!!What White House staffer would still wanna goto work tomorrow??? #COVID19 #TrumpCovid19 Epidemiologists just wanna vomit. pic.twitter.com/KMGgtrNOxA— Eric Feigl-Ding (@DrEricDing) October 5, 2020 Tugir annarra lýðheilsusérfræðinga tóku í sama streng. „Ég má vart mæla, þetta er klikkað. Þetta er bara svo algerlega ábyrgðarlaust,“ sagði Harald Schmidt, aðstoðarprófessor í heilbrigðissiðferði við Háskólann í Pennsylvaníu. William Schaffner, sérfræðingur í smitsjúkdómum við Vanderbilt-læknaháskólann í Tennessee, sagði skilaboð Trump til þjóðarinnar hættuleg því þau hvetji stuðningsmenn forsetans til þess að hunsa tilmæli yfirvalda sem eiga að tryggja öryggi þeirra. „Þetta leiðir til meiri kærulausrar hegðunar sem leiðir til fleiri smita veirunnar sem leiðir til meiri veikinda og meiri veikindi leiða til fleiri dauðsfalla,“ sagði Schaffner, að sögn New York Times. Trump hefur reynt að gera sem minnst úr veikindum sínum undanfarna daga.AP/Alex Brandon Virðist þvert á tilmæli heilbrigðisyfirvalda Judd Deere, talsmaður Hvíta hússins, fullyrti í gær að gripið hefði verið til allra nauðsynlegra varúðarráðstafana til þess að tryggja öryggi Trump, fjölskyldu hans og starfsliðs. „Aðgangur að forsetanum í persónu verður verulega takmarkaður og viðeigandi hlífðarbúnaður verður notaður þegar fólk er nálægt honum,“ sagði Deere í svari til Washington Post. Læknar myndu áfram fylgjast með líðan forsetans til að tryggja að hann nái fullum bata. Þessi tilhögun gengur þó gegn tilmælum Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna (CDC) um að fólk sem greinist smitað af Covid-19 bíði í að minnsta kosti tíu daga frá því að fær einkenni með að hitta annað fólk. Það gerði einnig bílferð sem Trump fór í fyrir utan Walter Reed-sjúkrahúsið á sunnudag. Lét Trump lífverði sína aka með sig til að hann gæti heilsað stuðningsmönnum sínum fyrir utan sjúkrahúsið og gerði þá þannig útsetta fyrir smiti. Trump tísti í hádeginu þar sem hann sagði að flensutímabilið væri að hefjast. Að margir deyi á hverju ári vegna flensu og stundum fleiri en hundrað þúsund manns. Það sé þrátt fyrir bóluefni. „Ætlum við að loka landinu okkar?“ spurði forsetinn og svaraði: „Nei, við verðum að læra að lifa með þessu, eins og við erum að læra að lifa með Covid, í flestum hópum mun minna banvænt!!!“ Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna áætlar að flensan hafi valdið 12 til 61 þúsund dauðsföllum á ári, frá 2010. Flu season is coming up! Many people every year, sometimes over 100,000, and despite the Vaccine, die from the Flu. Are we going to close down our Country? No, we have learned to live with it, just like we are learning to live with Covid, in most populations far less lethal!!!— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) October 6, 2020
Donald Trump Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bandaríkin Tengdar fréttir „Ekki láta veiruna stjórna ykkur, ekki vera hrædd við hana“ Donald Trump Bandaríkjaforseti er mættur aftur í Hvíta húsið eftir að hafa verið á Walter Reed-spítalanum í þrjár nætur. 6. október 2020 07:28 Leyniþjónustan ósátt við að Trump stefndi heilsu lífvarða í hættu Ákvörðun Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að láta tvo lífverði frá leyniþjónustunni aka með sig fyrir utan sjúkrahúsið þar sem hann dvelur til að hann gæti heilsað stuðningsmönnum sínum þrátt fyrir að hann sé smitaður af kórónuveirunni hefur vakið furðu og fordæmingu leyniþjónustunnar og lækna. 5. október 2020 12:52 Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Fleiri fréttir Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Sjá meira
„Ekki láta veiruna stjórna ykkur, ekki vera hrædd við hana“ Donald Trump Bandaríkjaforseti er mættur aftur í Hvíta húsið eftir að hafa verið á Walter Reed-spítalanum í þrjár nætur. 6. október 2020 07:28
Leyniþjónustan ósátt við að Trump stefndi heilsu lífvarða í hættu Ákvörðun Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að láta tvo lífverði frá leyniþjónustunni aka með sig fyrir utan sjúkrahúsið þar sem hann dvelur til að hann gæti heilsað stuðningsmönnum sínum þrátt fyrir að hann sé smitaður af kórónuveirunni hefur vakið furðu og fordæmingu leyniþjónustunnar og lækna. 5. október 2020 12:52