Átti mark Alfreðs að standa? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. október 2020 19:47 Alfreð Finnbogason skorar markið sem var síðan dæmt af. Vísir/Vilhelm
Eitt af þremur mörkum íslenska landsliðsins í fyrri hálfleik á móti Rúmeníu var ekki dæmt gilt þar sem Alfreð Finnbogason var sagður hafa verið rangstæður. Íslenska landsliðið er 2-0 yfir í hálfleik á móti Rúmeníu í umspilsleiknum mikilvæga í baráttunni um sæti á Evrópumótinu í fótbolta næsta sumar. Varsjáin var í fyrsta sinn notuð á knattspyrnuleik á Íslandi á Laugardalsvellinum í kvöld og auðvitað leið ekki langur tími þar til að Varsjádómararnir fengu eitthvað að gera. Alfreð Finnbogason hélt að hann hefði komið Íslandi í 2-0 á 27. mínútu eftir að hafa fengið stungusendingu inn fyrir vörnina frá Gylfa Þór Sigurðssyni. Alfreð var fljótur að átta sig og lyfti boltanum stórkostlega yfir markmanninn. Flaggið fór strax á loft en markið var síðan skoðað lengi í Varsjánni. Á endanum var markið síðan dæmt af en það var mjög tæpt eins og sjá má hér fyrir neðan. Sem betur fer leið ekki langur tími þar til að Gylfi Þór Sigurðsson kom íslenska landsliðinu í 2-0 með sínu öðru marki í leiknum. Það er hægt að sjá mark Alfreðs hér fyrir neðan og dæmi nú hver fyrir sig. Átti mark Alfreðs að standa? Klippa: Átti markið hans Alfreðs að standa?
EM 2020 í fótbolta Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Körfubolti Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Umferðin klárast og allt gert upp í Stúkunni Íslenski boltinn Uppgjör: Breiðablik-Keflavík 2-1 | Kristinn tryggði Blikum sigurinn Íslenski boltinn „Ég sef í bílnum ef ég þarf“ Golf Fleiri fréttir Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Fylkismenn keyrðu yfir Vestra í upphafi leiks Frábært að koma úr meiðslum og skora sitt fyrsta mark Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Uppgjör: Breiðablik-Keflavík 2-1 | Kristinn tryggði Blikum sigurinn Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Tekinn við króatíska landsliðinu á ný Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Hilmir fljótur að finna skotskóna í Tékklandi Häcken selur Fanneyju Ingu til Vålerenga Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Lést aðeins nokkrum vikum eftir að hann var rekinn úr hópi HM-dómara Breyttu nafninu á flugvél norska liðsins í „Ro Ro Ro Ro Airlines“ United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Þórdís fer frá Þrótti til Breiðabliks Myndavélin hreyfðist ekki og því engin snerting Langar að taka pásu frá landsliðinu Freyr sáttur eftir draumabyrjun: „Finn fyrir gleði og létti“ Villa að stela Manzambi af Newcastle Völdu besta og efnilegasta leikmanninn ásamt úrvalsliði deildarinnar Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ted Lasso-leikari spilaði sinn fyrsta leik í bandarísku B-deildinni Infantino spenntur fyrir því að fjölga liðum á HM í 64 Segir engan Frakka vera í franska landsliðinu Enska landsliðið þurft að ferðast mest allra liða Ánægður með frammistöðu heimsmeistaramótsins Sjá meira