Dró sér fé til að greiða eigin skuldir Vésteinn Örn Pétursson skrifar 26. október 2020 20:45 Dómur yfir konunni var kveðinn upp í Héraðsdómi Suðurlands 16. október síðastliðinn. Vísir/Vilhelm
Kona hefur verið dæmd í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt og peningaþvætti. Dómur yfir konunni féll í Héraðsdómi Suðurlands þann 16. október síðastliðinn, en dómurinn var birtur í dag. Konan var ákærð fyrir að hafa dregið sér fé af reikningi sem hún hafði aðgang að vegna starfs síns. Um var að ræða rúmlega 1,7 milljónir króna sem konan dró að sér frá 1. nóvember 2010 til 5. febrúar 2016. Þá var konan sakfelld fyrir peningaþvætti, með því að hafa yfir sama tímabil ráðstafað fjármunum sem hún dró að sér. Konan hafði aðgang að bankareikningi vinnustaðar síns og greiddi ítrekað eigin skuldbindingar, svo sem símreikninga, af þeim reikningi. Konan bar meðal annars fyrir sig að hafa óvart eða í hugsunarleysi greitt eigin reikninga út af reikningi vinnustaðarins, þar sem sá reikningur hafi opnast sjálfkrafa í heimabanka hennar. „Þessari málsvörn ákærðu er hafnað. Þykir afar ótrúverðugt að þetta geti hafa gerst trekk í trekk, án þess að ákærða gætti sín á þessu, en að auki hefði þá mátt búast við að ákærða hefði leiðrétt þetta þegar í stað og þá með sömu krónutölum, en þess sér ekki stað í málinu,“ segir meðal annars í dómnum. Konan var dæmd til 45 daga fangelsisvistar, sem er skilorðsbundin til tveggja ára. Þá var henni gert að greiða sakarkostnað í málinu.
Dómsmál Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira