Vegagerðin segir lög ekki hafa verið brotin Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 14. nóvember 2020 13:19 Flugfélagið Ernir hafði kært fyrri ákvörðun Vegagerðarinnar um að semja við Norlandair um þá leggi sem boðnir voru út með vísan til þess að vélar þeirra uppfylli ekki þau skilyrði sem lögð hafi verið til grundvallar í útboðinu. Vísir/Vilhelm
Vegagerðin segir að stofnunin hafi ekki brotið lög þegar gengið var frá samningum við Norlandair ehf. um flug til Bíldudals og Gjögurs. Ýmsar rangfærslur hafi þó verið á kreiki um málið. Beðið hafi verið eftir afstöðu kærunefndar útboðsmála áður en gengið hafi verið til samninga. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni í dag þar sem segir að kærunefndin hafi heimilað samningsgerðina og þar af leiðandi séu samningarnir lögmætir. Fram kom í fréttum fyrr í vikunni að kærunefnd útboðsmála telji að Vegagerðin hafi brotið gegn lögum um opinber innkaup með samningum sínum við Norlandair um flugleiðir til og frá Bíldudal. Bæjarstjóri Vesturbyggðar lýsti jafnframt áhyggjum af því að verið sé að skerða þjónustu á Vestfjörðum. Flugfélagið Ernir hafði kært fyrri ákvörðun Vegagerðarinnar um að semja við Norlandair um þá leggi sem boðnir voru út með vísan til þess að vélar þeirra uppfylli ekki þau skilyrði sem lögð hafi verið til grundvallar í útboðinu. Þessu mótmælir Norlandair í tilkynningu sem félagið sendi frá sér í gær. „Flugvélakostur Norlandair og fjárhagshæfi uppfyllir öll skilyrði útboðsins og er hafið yfir vafa,“ segir í tilkynningu Norlandair. „Það er sorglegt að þurfa að bera til baka ítrekaðar rangfærslur eftir þátttöku í opinberu útboði. Til þess er stjórnsýslufarvegur og treystum við því að þar sé allt gert á eðlilegan og faglegan hátt. Að endingu óskum við Herði Guðmundssyni og starfsfólki flugfélagsins Ernis velfarnaðar og friðar,“ segir ennfremur í tilkynningunni. Vegagerðin sendi aftur á móti frá sér tilkynningu vegna málsins í dag. „Ýmsar rangfærslur hafa komið fram um útboðið og halda áfram og því rétt að árétta að flugvélar Norlandair ehf. sem notaðar verða til að sinna þeirri þjónustu sem boðin var út standast allar kröfur útboðsins,“ segir í tilkynningu Vegagerðarinnar. Vegagerðinni sé skylt að bjóða flugþjónustu út reglulega og tilgangurinn með opinberum innkaupum af því tagi sé að auka samkeppni með hag almennings að leiðarljósi. „Augljóslega er einnig skylt að taka hagstæðustu tilboðum hverju sinni sem standast þær kröfur sem gerðar eru í útboði og óheimilt er að velja fyrirtæki á þeirri forsendu að það hafi sinnt þjónustunni lengi,“ segir í tilkynningunni. Vegagerðin hafi upphaflega fengið Ríkiskaup til að annast útboðið sem hafi komist að þeirri niðurstöðu að tilboð flugfélagsins Ernis ehf. hafi ekki uppfyllt skilyrði útboðsins og væri því ógilt. Því hafi Ríkiskaup talið rétt að semja við Norlandair um alla leggina sem boðnir voru út. „Flugfélag Austurlands ehf. stóðst ekki útboðskröfur og gat aldrei komið til álita. Vegagerðin tók við útboðinu og nýtti heimildir til þess að heimila bjóðendum að leggja fram viðbótargögn og frekari skýringar. Erni var ítrekað gefið slíkt tækifæri,“ segir í tilkynningu Vegagerðarinnar. Að fengnum viðbótarupplýsingum frá Erni hafi tilboð fyrirtækisins verið metið gilt og Erni þá boðinn samningur um annan af tveimur hlutum útboðsins enda hafi fyrirtækið boðið lægst í þeim hluta útboðsins, rétt eins og Norlandair hafi verið lægstbjóðandi að hinum hlutanum, en flugleiðirnar um Bíldudal og Gjögur voru boðnar út saman en flugleiðin á Hornafjörð sér. Þrátt fyrir yfirlýsingu Vegagerðarinnar stendur Flugfélagið Ernir óhaggað við þá afstöðu sína að lög hafi verið brotin. Vegagerðin reyni að túlka niðurstöðu kærunefndar sér í hag en fullyrðingar Vegagerðarinnar standist ekki, að því er haldið fram í fréttatilkynningu frá Erni. „Næstkomandi mánudag, 16. nóvember 2020, lýkur þjónustu Ernis ehf. á flugleiðinni á milli Reykjavíkur og Gjögurs og milli Reykjavíkur og Bíldudals samkvæmt ákvörðun Vegagerðarinnar. Það ríkir sorg og eftirsjá í félaginu við þessi þáttaskil, sem eru tilkomin vegna ógildrar stjórnsýslu, en um leið er Vestfirðingum þakkað fyrir samstarfið og óskað alls hins besta með vonum um að úr rætist,“ að því er segir í tilkynningu Ernis í gær. Fréttin hefur verið uppfærð með viðbrögðum flugfélagsins Ernis og Norlandair við tilkynningu Vegagerðarinnar.
Samgöngur Fréttir af flugi Vesturbyggð Árneshreppur Byggðamál Mest lesið Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Innlent Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi Innlent „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans Innlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Innlent Sami flugmaðurinn skotinn niður yfir Íran og yfir Kúveit Erlent Fleiri fréttir Vara við umfangsmiklum netsvikum í nafni lögreglunnar Sóttu ökumann sem slasaðist í mótorhjólaslysi Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Hafa engar upplýsingar um Sindra Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans „Það hefnir sín oft að yrkja ljóð“ Fjárdráttur lögmanns hjá héraðssaksóknara Lögregla leitar vitna í innbrotsmáli Reykjabús Tilfinningaþrungin stund á Alþingi og nýr leik- og grunnskóli að rísa í Reykjavík Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Ef þeir hafi ekki aga gerist ekki neitt Áslaug Arna hættir á Alþingi Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Leita Íslendings í Taílandi Steingrímur Ari Arason er látinn Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Baldur og Herjólfur sigla til Eyja Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Dýrum stefnt í hættu Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Beri skylda að skila Dananum hugsanlega á Þingvöllum Tímamót í borginni, innbrot í kjúklingabú og forritari á barnsaldri Sjá meira