Alvöru sýrður rjómi í nýju bragði frá Lava Cheese Lava Cheese 17. nóvember 2020 10:23
Ný bragðtegund af ostasnakkinu vinsæla, Lava Cheese, hefur litið dagsins ljós. Nýja bragðtegundin, Sour cream & onion, er fáanleg í verslunum Krónunnar og Hagkaup og verður brátt fáanleg víðar. „Við ákváðum að nota alvöru sýrðan rjóma og alvöru lauk í þetta í stað bragðefna enda trúum við því að fólk hafi virkilegan áhuga á að sleppa auka- og gerviefnum. Niðurstaðan er ótrúlega bragðgott snakk enda tónar sýrður rjómi og laukur mjög vel með hinum bragðmikla íslenska osti,“ segir Guðmundur Páll Líndal, eigandi Lava Cheese. Stökki osturinn í grillinu Lava Cheese var stofnað árið 2017 út frá hugmyndinni um að besti osturinn væri stökki osturinn af samlokugrillinu. „Nú bætum við um betur og gerum Lava Cheese útgáfuna af þessari vinsælu bragðtegund,“ segir Guðmundur. Engin kolvetni Lava Cheese hefur þótt mjög vinsælt meðal ketó- og lágkolvetnasamfélagsins þar sem það inniheldur engin kolvetni og er búið til úr alíslenskum osti. „Lava Cheese ostasnakkið er gert með það að leiðarljósi að fólk eigi ekki að þurfa að velja á milli kolvetna og bragðs eins og vill oft verða í kolvetnaskertum vörum. Þannig er stefnan sú að Lava Cheese sé ótrúlega bragðgott en innihaldi engin kolvetni.“ Fyrir eru bragðtegundirnar Chili, Reyktur og venjulegur cheddar. En hvaða bragðtegund er vinsælust? „Sá venjulegi hefur klárlega verið vinsælust enda er fólk oft líklegt til að falla til baka á það í valkvíðanum. Á eftir því hefur chili komið sterkt inn og svo rekur sá reykti lestina. Reyktur var gríðarlega vinsæll meðal bandarískra ferðamanna enda vilja þeir allt sitt reykt en í ljósi aðstæðna er ekki mikið um það núna,“ segir Guðmundur. Allar nánari upplýsingar um þessa bragðgóðu hugmynd er að finna hér.
Matur Hús og heimili Mest lesið Britney Spears handtekin og í haldi yfir nótt Lífið Poppstjarna notaði lag Bríetar: „Litla Bríet er að öskra núna“ Lífið Vinsælustu sýningu leikhússins frestað vegna óvæntra meiðsla Lífið Giftu sig eftir sex mánaða bakpokaferðalag Lífið Er Jón Gnarr búinn að horfa aðeins of oft á Pretty Woman? Lífið Apinn að vaxa upp úr apabangsanum Lífið Bruce Campbell með ólæknandi krabbamein Bíó og sjónvarp Lengsti klukkutími ævinnar Gagnrýni Tóti fékk bílinn lánaðan frá Líf Magneudóttur Lífið Þekktasta söngleikjalag allra tíma í nýjum búning Tónlist Fleiri fréttir Kerry Ellis og The Barricade Boys saman í Broadway Party í Hörpu Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira