Ákærður fyrir árásir á kærustu til viðbótar við vændi og nauðgunartilraun Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. nóvember 2020 09:01 Málið er til meðferðar hjá Héraðsdómi Reykjavíkur. Vísir/Vilhelm
Karlmaður sem sætir ákæru fyrir kaup á vændi, tilraun til nauðgunar og sérstaklega hættulega líkamsárás í júní í fyrra er sömuleiðis sakaður um ofbeldi í nánu sambandi á þessu ári. Málin hafa verið sameinuð og eru rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Í ákærunni sem snýr að ofbeldi í nánu sambandi kemur fram að karlmaðurinn hafi fimmtudagskvöld í apríl síðastliðnum veist með ofbeldi að kærustu sinni á heimili hennar í fjölbýlishúsi. Þar hafi hann rifið í hár hennar, hrint í gólfið, tekið utan um höfuð hennar og skellt í gólfið. Er hann sagður hafa kýlt kærustuna ítrekað í andlitið með krepptum hnefa og tekið hana hálstaki. Konan hlaut margvíslega áverka við árásina svo sem bólgu og mar í kringum augu, yfir kinnbeinum beggja vegna, sprungna vör svo úr blæddi og eymsli víða á líkama. Fjórum mánuðum síðar er karlmaðurinn sakaður um áþekka árás á kærustuna. Er hann sakaður um að hafa skellt konunni í gólfið, kýlt hana ítrekað í andlit og líkama með krepptum hnefa, tekið hana hálstaki aftan frá og hótað að drepa hana. Hlaut konan bólgu og mar yfir hægra kinnbeini, eymsli yfir kjálka beggja vegna, yfirborðsáverka og mar á hálsi, bólgu og eymsli yfir nefhrygg auk fleiri eymsla. Þá blæddi úr nefi hennar og munni. Eins og fyrr segir er mál héraðssaksóknara gegn manninum til meðferðar hjá Héraðsdómi Reykjavíkur.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Erlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira