Mjög jákvæðar fréttir fyrir Liverpool því Mo Salah er nú neikvæður Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. nóvember 2020 09:45 Mohamed Salah er markahæsti leikmaður Liverpool á leiktíðinni til þessa. EPA-EFE/Peter Powel
Mohamed Salah má byrja að æfa á nýju með Liverpool eftir að hafa mælst neikvæður í nýjasta kórónuveiruprófinu sínu. Mohamed Salah sýkist af kórónuveirunni í brúðkaupi bróður síns í Egyptalandi en þangað fór hann í landsleikjaglugganum. Brúðkaupið var á undan landsleikjunum en Salah gat ekki spilað með egypska landsliðinu vegna smitsins. Mohamed Salah missti af leik Liverpool í gær en ætti ekki að missa af fleiri leikjum vegna kórónuveirusmitsins. Mohamed Salah tests NEGATIVE for coronavirus to boost Jurgen Klopp's injury-hit Liverpool squad https://t.co/vA7gBNvF6o— MailOnline Sport (@MailSport) November 23, 2020 Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, sagði frá því eftir Leicester leikinn í gær að hann reiknaði með því að fá Mohamed Salah á æfingu hjá sér í dag. „Ég heyrði af því að Salah hafi verið neikvaður. Á morgun (í dag) þá förum við í UEFA próf og hann mun fara í það. Hann getur núna æft með okkur,“ sagði Jürgen Klopp. „Það eru tvö próf skipulögð á næstu tveimur dögum og hann mun gangast undir þau eins og við allir,“ sagði Klopp. Liverpool saknaði Mohamed Salah ekki mikið í gærkvöldi þegar liðið vann 3-0 sigur á Leicester City í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar. Diogo Jota stóð sig mjög vel í framlínunni við hlið þeirra Sadio Mane og Roberto Firmino en allir nema Mane skoruðu. Mohamed Salah er markahæsti leikmaður Liverpool á leiktíðinni með 10 mörk í 13 leikjum. Diogo Jota er aftur á móti kominn með 8 mörk og hann hefur spilað næstum því 400 mínútum minna en Salah.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Olnbogi Ægis brotnaði Körfubolti Uppgjörið: Keflavík-Valur 88-81 | Keflavík tryggði sér oddaleik Körfubolti Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Fótbolti Ægir fluttur í burtu í sjúkrabíl Körfubolti Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Fótbolti „Þeir geta tekið þetta með sér“ Fótbolti Uppgjör: Valur-Fram 26-24 | Ótrúleg endurkoma meistaranna í fyrsta leik Handbolti Ekitike sleit hásin Fótbolti Oliver keyptur til KA Íslenski boltinn Arsenal tókst ekki að skora en komst samt áfram í undanúrslit Fótbolti Fleiri fréttir „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar „Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Sjá meira