Barr kannast ekki við svindl og Giuliani ekki við náðunarspjall Hólmfríður Gísladóttir skrifar 1. desember 2020 22:42 Trump fór mikinn á Twitter í dag og heldur því enn fram að hann hafi unnið ákveðin ríki og að stórfellt svindl hafi átt sér stað. Barr, einn af hans helstu stuðningsmönnum, kannast hins vegar ekki við það. epa/Michael Reynolds William Barr, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, segir engar vísbendingar liggja fyrir um að stórfelld kosningasvik hefðu átt sér stað í nýafstöðnum forsetakosningum. „Hingað til höfum við ekki séð svindl af þeirri stærðargráðu að það hefði leitt til annarra úrslita í kosningunum,“ sagði Barr í viðtali við Associated Press.
Ráðherrann hefur verið einn dyggasti stuðningsmaður Donald Trump Bandaríkjaforseta, sem hefur ítrekað haldið því fram að kosningunum hafi verið „stolið“. Barr gekk svo langt að taka þá fordæmalausu ákvörðun að heimila undirmönnum sínum að rannsaka ásakanir Trump en hann hefur nú játað að þær rannsóknir hafi engu skilað. „Ein staðhæfingin hefur gengið út á kerfisbundið svindl og snýst um að vélarnar hafi verið forritaðar til að hafa áhrif á niðurstöður kosninganna,“ sagði Barr við AP. Þær fullyrðingar hefðu hins vegar ekki átt við rök að styðjast. Barr sagði jafnframt að sumir virtust halda að það væri hlutverk refsiréttarkerfisins að taka fyrir ásakanir um kosningasvindl en réttur farvegur væru einkamál í hverju ríki fyrir sig. Flestar ásakanirnar snérust um einstaka tilvik, ekki kerfisbundin svik. Hope everybody is watching @OANN right now. Other media afraid to show. People are coming forward like never before. Large truck carrying hundreds of thousands of fraudulent (FAKE) ballots to a voting center? TERRIBLE - SAVE AMERICA!— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) December 1, 2020 Segja Barr ekki hafa vit á málinu Lögmenn Trump, Rudy Giuliani og Jenna Ellis, brugðust við ummælum Barr í yfirlýsingu og sögðu að með fullri virðingu fyrir ráðherranum þá hefði engin raunveruleg rannsókn átt sér stað af hálfu dómsmálaráðuneytisins. Sögðu þau að ráðuneytið hefði ekki rannsakað þau „sönnunargögn“ sem Trump-teymið hefði lagt fram en það var einmitt það sem Barr sagði að væri ekki hlutverk alríkisdómskerfisins. Í yfirlýsingunni sagði enn fremur að málaferlum vegna kosninganna yrði haldið áfram, til að tryggja að öll lögleg atkvæði yrðu talinn en ólögleg ekki. Þá ítrekuðu Giuliani og Ellis, með fullri virðingu, að svo virtist sem „skoðun“ Barr byggði hvorki á þekkingu né rannsókn á málinu. Giuliani er einn af fáum sem enn standa þétt við bakið á forsetanum.epa/Stefani Reynolds Ræddu Giuliani og Trump um náðun? Þetta var ekki eina yfirlýsingin sem Giuliani sendi frá sér í dag en hann brást ókvæða við þegar New York Times greindi frá því að hann og Trump hefðu átt samtal um fyrirfram náðun til handa Giuliani. „NYT lýgur aftur,“ sagði borgarstjórinn fyrrverandi á Twitter en samkvæmt fjölmiðlinum munu mennirnir áður hafa rætt um að forsetinn náðaði Giuliani áður en hann yfirgefur Hvíta húsið. #FakeNews NYT lies again. Never had the discussion they falsely attribute to an anonymous source. Hard to keep up with all their lies.— Rudy W. Giuliani (@RudyGiuliani) December 1, 2020 Giuliani ku hafa haft áhyggjur af því að rannsóknir sem hann kann að hafa sætt en hafa verið á bið í stjórnartíð Trump fari aftur af stað þegar Joe Biden verður forseti. Giuliani og tveir samverkamenn hans, Lev Parnas og Igor Fruman, hafa m.a. sætt rannsókn fyrir að hafa þrýst á stjórnvöld í Úkraínu um að rannsaka son Biden. Þá er Giuliani einnig grunaður um að hafa gengið erinda úkraínskra stjórnvalda við að koma bandaríska sendiherranum í Úkraínu frá. Síðarnefnda er alríkisglæpur. Ekki óþekkt að menn séu náðaðir fyrirfram Það er ekki óþekkt að forsetar hafi náðað einstaklinga fyrirfram en það gerðist m.a. þegar Gerald R. Ford náðaði Richard M. Nixon fyrir alla gjörninga hans í embætti og Jimmy Carter náðaði þúsundir manna sem komu sér undan herskyldu í Víetnamstríðinu. Sjálfur hefur Trump farið mjög frjálslega með náðunarvald sitt og beitt því í þágu samverkamanna á borð við Roger Stone, fyrrum ráðgjafa sinn, og Michael T. Flynn, fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa. Þá er alveg eins búist við því að hann náði kosningastjórann Paul Manafort. Sá böggull fylgir þó skammrifi að ef Trump ákveður að náða Giuliani fyrirfram, þá verður hann að tiltaka fyrir hvað.
Forsetakosningar í Bandaríkjunum Bandaríkin Donald Trump Tengdar fréttir Er sagður hafa krafið Trump um 2,7 milljónir á da Rudolph W. Giuliani, sem hefur leitt tilraunir Donald Trump Bandaríkjaforseta til að fá úrslitum forsetakosninganna snúið, fór fram á að fá greitt fyrir sem samsvarar 2,7 milljónum króna á dag. 17. nóvember 2020 21:44 Lögmaður Trump vill Krebs dreginn út í dögun og skotinn Stuðningsmenn Donald Trump Bandaríkjaforseta freista þess enn að fá niðurstöðum forsetakosninganna snúið. Baráttan hefur litlu skilað og reiðin magnast. 1. desember 2020 17:18 Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Innlent Fleiri fréttir Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Sjá meira
Er sagður hafa krafið Trump um 2,7 milljónir á da Rudolph W. Giuliani, sem hefur leitt tilraunir Donald Trump Bandaríkjaforseta til að fá úrslitum forsetakosninganna snúið, fór fram á að fá greitt fyrir sem samsvarar 2,7 milljónum króna á dag. 17. nóvember 2020 21:44
Lögmaður Trump vill Krebs dreginn út í dögun og skotinn Stuðningsmenn Donald Trump Bandaríkjaforseta freista þess enn að fá niðurstöðum forsetakosninganna snúið. Baráttan hefur litlu skilað og reiðin magnast. 1. desember 2020 17:18