Innlent

Tvítugir að tapa milljónum í íþróttaveðmálum

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Alma hefur sérstakar áhyggjur af ungum karlmönnum á aldrinum 18-25 ára sem spila póker og taka þátt í íþróttaveðmálum á netinu.
Alma hefur sérstakar áhyggjur af ungum karlmönnum á aldrinum 18-25 ára sem spila póker og taka þátt í íþróttaveðmálum á netinu. getty/hirurg

Miklar áhyggjur eru af íþróttaveðmálum ungra karlmanna. Dæmi eru um að tvítugir menn tapi mörgum milljónum á netinu. Engin sérhæfð spilafíklameðferð er í boði á Íslandi.

Afar lítið er til af rannsóknum um spilafíkn en rannsókn sem gerð var fyrir fimmtán árum sýnir að 62% sextán til átján ára nemenda í framhaldsskólum höfðu spilað peningaspil síðasta árið.

Þá voru spilakassar vinsælasta peningaspilið, en næst komu skafmiðar og svo veðmál á netinu, íþróttveðmál og póker.

Alma Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka áhugafólks um spilafíkn, segir allt benda til þess að hlutfallið sé mun hærra í dag, nýjar erlendar rannsóknir sýni að 91% krakka á þessum aldri hafi prófað fjárhættuspil

„Og það sem kom á óvart er að meðalaldur ungmenna sem þróa með sér spilafíkn er 10 ára. Þau byrja 10 ára gömul að leggja undir peninga í fjárhættuspili.“

Alma segir Ísland á eftir varðandi rannsóknir á spilafíkn, meðferð við henni og forvarnir.vísir/egill

Alma segist hafa verulegar áhyggjur af íþróttaveðmálum.

„Þetta er svo gríðarlegar upphæðir sem ungir krakkar eru að tapa. Ég fæ á borð hjá mér stráka 21-23 ára sem eru búnir að takpa 5-15 milljónum.“

Engin sérhæfð meðferð fyrir spilafíkla

Alma segir mörg dæmi um að fjölskyldur greiði skuldina, jafnvel í tví- eða þrígang, áður en stigið er niður fæti og sagt að viðkomandi þurfi að fá aðstoð við vanda sínum. En hún er ekki auðfengin.

„Því miður eru nánast engin úrræði og virðist ekki vera um neinar sérhæfða spilafíklameðferð að ræða. Þar erum við aftur á eftir.“

Alma ber þó von um meðferðarúrræði, auknar forvarnir og fræðslu eftir að SÁÁ dróg sig út úr rekstrinum á spilakössum og eru því ekki báðum megin við borðið lengur. Það hafi verið flókið að vera í samstarfi við hagsmunaaðila. Einnig fagnar hún aukinni umræðu. Það sé verið að tala um hlutina eins og þeir eru.

„Það urðu ákveðin þáttaskil í okkar baráttu í þessum Kompásþætti þar sem þessir þrír einstaklingar stigu fram undir nafni og í mynd. Það segir okkur að skömmin er að minnka og vonandi getum við farið að kortleggja spilafíkn á Íslandi,“ segir Alma Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka áhugafólks um spilafíkn.


Tengdar fréttir

„Bið til guðs að þeir opni ekki aftur“

Flestir spilafíklar eru með fíkn í spilakassa. Þeir hafa verið lokaðir í samkomubanni. Heitasta ósk þriggja viðmælenda Kompáss er að kassarnir verði ekki opnaðir aftur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×