Mögnuð endurkoma Juventus í nágrannaslagnum Arnar Geir Halldórsson skrifar 5. desember 2020 18:59 Bonucci í þann mund að tryggja Juve sigurinn. vísir/Getty Ítalíumeistarar Juventus lentu í kröppum dansi þegar þeir fengu nágranna sína í Torino í heimsókn í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Gestirnir komust óvænt yfir með marki varnarmannsins Nicolas Nkoulou á 9.mínútu. Þeim hélst forystan allt þar til á 78.mínútu þegar Bandaríkjamaðurinn Weston McKennie jafnaði metin fyrir Juventus. Meisturunum tókst svo að troða inn sigurmarki en það gerði Leonardo Bonucci á 89.mínútu. Mikilvægur sigur fyrir Juventus sem er nú þremur stigum á eftir toppliði AC Milan, sem á þó einn leik til góða. Ítalski boltinn
Leik lokið: Breiðablik - Vestri 1-2 | Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Íslenski boltinn
Þeir bestu (30.-26. sæti): Markvörður stóru augnablikanna, varnargoð úr Eyjum og Vesturbænum, Smalinn og listamaðurinn Íslenski boltinn
Þeir bestu (30.-26. sæti): Markvörður stóru augnablikanna, varnargoð úr Eyjum og Vesturbænum, Smalinn og listamaðurinn
Leik lokið: Breiðablik - Vestri 1-2 | Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Íslenski boltinn
Þeir bestu (30.-26. sæti): Markvörður stóru augnablikanna, varnargoð úr Eyjum og Vesturbænum, Smalinn og listamaðurinn Íslenski boltinn