Lánlaust lið Barcelona fékk lið Levante í heimsókn í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld en síðarnefnda liðið var í fallsæti þegar kom að leik kvöldsins.
Börsungar höfðu talsverða yfirburði út á vellinum en áttu í erfiðleikum með að koma marki á varnarsinnað lið gestanna.
Ekkert mark var skorað í leiknum fyrr en á 76.mínútu þegar goðsögnin Lionel Messi kom sínu liði til bjargar með góðu skoti eftir stoðsendingu Frenkie De Jong.
Barcelona lyfti sér upp í áttunda sæti deildarinnar með sigrinum.