Innlent

Flug­sam­göngur milli Ís­lands og Bret­lands tryggðar eftir Brexit

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra.
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra. Foto: Vilhelm Gunnarsson/Vilhelm Gunnarsson

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, undirritaði í dag fyrir Íslands hönd loftferðasamning milli Íslands og Bretlands. Flugsamgöngur hafa því verið tryggðar á milli ríkjanna eftir útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu.

Robert Courts, ráðherra flug- og siglingamála og almannaöryggis í bresku ríkisstjórninni, undirritaði samninginn fyrir hönd Bretlands. Hann er gerður vegna útgöngu Bretlands úr ESB en við lok aðlögunartímabilsins 31. desember 2020 munu flugsamgöngur á milli Íslands og Bretlands ekki lengur byggja á EES-samningnum. 

Þetta er fyrsti langtímasamningurinn sem Ísland gerir við Bretland vegna útgöngunnar úr ESB en umfangsmiklar viðræður um framtíðarsamband ríkjanna á fjölmörgum sviðum standa nú yfir, að því er segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Samningurinn veitir sömu tvíhliða flugréttindi og bæði löndin hafa í dag með aðild þeirra að Sameiginlega evrópska flugsvæðinu (e. European Common Aviation Area).

Fríverslunarviðræður Íslands og hinna EFTA-ríkjanna innan EES, Noregs og Liechtenstein, við Bretland standa nú yfir og eru langt komnar, að því er segir í tilkynningu. Í síðustu viku undirrituðu bresk og íslensk stjórnvöld bráðabirgðafríverslunarsamning sem tryggir óbreytt tollkjör vegna vöruviðskipta við Bretland.

Þar sem samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið (EES) mun ekki gilda lengur um Bretland frá og með 1. janúar 2021 þurfa Íslendingar að huga að nokkrum atriðum í því sambandi, sérstaklega þeir sem búa á Bretlandi eða hyggjast flytja þangað á næstunni og þeir sem stunda viðskipti við Bretland eða eiga þar annara hagsmuna að gæta. Utanríkisráðuneytið hefur tekið saman gátlista af því tilefni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×