Ekberg skaut Kiel í úrslitin eftir framlengingu Anton Ingi Leifsson skrifar 28. desember 2020 21:31 Sá sænski reyndist hetjan í kvöld. Marijan Murat/Getty Kiel er komið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar eftir framlengdan undanúrslitaleik gegn Telekom Veszprém í Köln í kvöld. Lokatölur urðu 36-35, þýska liðinu í vil, eftir að staðan var 29-29 eftir venjulegan leiktíma.
Úrslitahelgi Meistaradeildarinnar fer venjulega fram um mánaðamótin maí júní en var frestað um nokkra mánuði vegna kórónuveirufaraldursins og fer nú fram milli jóla og nýárs. Jafnræði var með liðunum fyrsta stundarfjórðunginn en þá stigu þeir þýsku á bensíngjöfina og náðu mest sjö marka forystu í fyrri hálfleik. Þeir voru 18-14 yfir í hálfleik. Veszprém minnkaði hægt og rólega muninn og þeir voru búnir að jafna eftir stundarfjórðung í síðari hálfleik. Þeir breyttu stöðunni úr 24-21 í 24-28 en dramatíkinni var þó ekki lokið. Kiel skoraði fjögur mörk í röð og jafnaði metin í 28-28. Lokamínúturnar fjörugar en liðin skoruðu sitt hvort markið og því þurfti að framlengja. Allt var áfram jafnt eftir fyrri hálfleik framlengingarinnar, 34-34, en er innan við mínúta var til leiksloka skoraði sænski landsliðsmaðurinn Niclas Ekberg og kom hann Kiel í 36-35. Það urðu lokatölurnar og mætir Aron Pálmarsson því Kiel í úrslitaleiknum. Hendrik Pekeler skoraði átta mörk og var markahæstur hjá Kiel. Vuku Borozan og Gasper Marguc gerðu sjö hvor fyrir Veszprém. Aron lék áður með Kiel og Veszprém og fór með báðum liðum í úrslit Meistaradeildarinnar. Hann varð Evrópumeistari með Kiel 2010 og 2012. Úrslitaleikurinn fer fram annað kvöld klukkan 20.30 en leikurinn um þriðja sætið þar á undan.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum Fótbolti Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira