Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er í nítjánda sæti á nýjum styrkleikalista Alþjóða knattspyrnusambandsins sem var gefinn út í dag.
Íslensku stelpurnar detta niður um eitt sæti en bæði Ísland og Sviss missa Suður Kóreu upp fyrir sig.
Ísland situr í 19. sæti á nýjum heimslista FIFA og fellur um eitt sæti.#dottir #LeiðinTilEnglands https://t.co/mFOdFFFFiB
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) March 27, 2020
Holland, Japan, Ísland og Sviss eru einu þjóðirnar á topp tuttugu sem lækka á listanum.
Íslenska landsliðið spilaði þrjá æfingarleiki á Spáni í marsmánuði, vann 1-0 sigur á bæði Norður-Írlandi og Úkraínu en tapaði 1-0 fyrir Skotlandi. Leikirnir voru allir á Pinatar æfingarmótinu sem kom í staðinn fyrir Algarve-bikarinn.
Skotland hækkar sig um eitt sæti á listanum og er nú komið upp í 21. sæti.
Íslensku stelpurnar voru hæst í sautjánda sæti á síðasta ári og fóru alla leið upp í fimmtánda sæti árið 2013.