Læknaður af fleiri en einni veiki eftir einangrun Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 20. apríl 2020 11:00 Kjartan Almar Kárason hafði áhyggjur af því hvaða áhrif einangrun á hótelherbergi í tvær vikur myndi hafa á þunglyndi hans og kvíða. Mynd/Þórdís Erla Ágústsdóttir
Kjartan Almar Kárason þakkar Covid fyrir að hafa gefið sér tækifæri til að kynnast sjálfum sér og róast í tilvistarkreppunni. Hann segist nú laus við meðvitundarleysi í daglegu lífi eftir að hafa eitt tveimur vikum aleinn í einangrun á hótelherbergi með eigin hugsunum. Kjartan Almar dvaldi tvær vikur á sóttvarnarhúsinu sem opnað var á Fosshótel Lind við Rauðarárstíg vegna kórónuveirunnar og skrifaði um það pistil sem birtist hér á Vísi. „Þetta eru skrítnir og óneitanlega hrikalegir tímar sem hafa þó haft margt gott í skauti sér, allavega fyrir mig persónulega. undanfarnar tvær vikur hef ég haft meiri tíma til að kynnast sjálfum mér og líta innávið en ég hef gert alla mína 25 ára ævi. í tilefni af kvartaldarafmæli mínu fæ ég að endurfæðast inn í gjörólíkan heim sem nýr maður, með nýja lífssýn.“ Átti um sárt að binda Kjartan Almar hefur verið einkennalaus og heilsuhraustur á þessum tíma en gat ekki sinnt vinnu, erindagjörðum, þrifum og eldamennsku. Hann er barnlaus og nýlega einstæður svo þessar tvær vikur þurfti hann aðeins að sinna sjálfum sér, sem reyndist bæði fræðandi og dýrmæt en líka erfið og ógnvænleg reynsla. „Mínir dagar í vist hér hafa verið mikil forréttindi sem ekki allir Covid-19 smitaðir hafa notið góðs af og ég finn fyrir miklu þakklæti í garð allra sem hafa veitt mér aðstoð. Því þó að heilsufarslegt ástand hafi ekki verið af alvarlegum toga hafið þið hjálpað manni sem átti um sárt að binda á hátt sem hvorki ég né þið sáuð fyrir.“ Hann hefur í mörg ár verið kvíðasjúklingur og óttaðist hvaða áhrif einangrun í litlu herbergi í allan þennan tíma myndi hafa á geðheilsuna. Kjartan Almar sá fyrir sér kvíðakast og geðbilun en raunin varð allt önnur. „Ég var meðvitaðri um líðan mína og passaði að fara betur með mig en ég hefði annars gert, með hjálp hugleiðslu, öndunaræfinga, hreyfingu og holls mataræðis auk áfengis- og kaffibindindis. Ég sé nú áhrif hvers og eins þessara áhrifavalda í skýrara ljósi og get verið meðvitaðri og varkárari gagnvart þeim í mínu komandi daglega lífi.“ Félagslegur kvilli Kjartan Almar segir að fyrstu dagarnir hafi verið erfiðir því venjulega þarf hann sífellt að vera á flakki til að finna verkefni til að framfleyta sér og ná lengra, seðja sjálfið. „Þessi gulrót sem ég og margir samlandar mínir eltumst ótrauðir við hefur smám saman leitt okkur af vegi þess sem er mikilvægt í lífinu og fjær hamingjunni. Það hefur orðið mér ljóst að við erum í okkar daglega lífi, á mismeðvitaðan hátt, aðeins að dreifa huganum og seinka því að horfast í augu við okkur sjálf, hver við erum, hvað við viljum og að lokum okkar óhjákvæmilega dauðadag. Þetta meðvitundarleysi er félagslegur kvilli sem hefur lagst á vestrænt samfélag og fyllt okkur kvíða og óhamingju, löngu áður en þessi Covid-19 veira herjaði á. Að hafa horfst í augu við þennan kvilla hefur verið græðandi. Því get ég sagt að eftir þessa einangrun verð ég því læknaður af fleiri en einni veiki - einni tímabundinni og einni langvarandi.“ Hann er því þakklátur fyrir tækifærið til að kynnast sjálfum sér og róast í tilvistarkreppunni. Þakkar hann Covid, Fosshótel, Rauða krossinum og Landspítalanum. „Ég vona að aðrir fái tækifæri til að komast á þennan andlega stað án þess að þurfa að ferðast yfir hnöttinn eða að setja sig í þá hættu að láta smitast af einhverri árans veiru eins og ég. Hvort sem slíkt tækifæri gefst eða ei, trúi ég að við munum öll komast í gegnum þetta tímabil sem betri, hamingjusamari og meðvitaðri manneskjur.“ Hægt er að lesa pistil Kjartans Almars í heild sinni hér á Vísi.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Reykjavík Tengdar fréttir Þakkir fyrir umönnun á Fosshótel Lind Nú er liðið að lokum á áhugaverðri lífsreynslu í lífi mínu. Eftir að hafa verið greindur með Covid-19 veiruna hef ég síðastliðnar tvær vikur verið einangraður innan veggja þriggja stjörnu herbergis á FossHótel Lind við Rauðárstíg. 19. apríl 2020 17:00 Mest lesið Vill 700 milljónir fyrir höllina Lífið Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Lífið Geoff og Ásta Margrét nýtt par Lífið Fannar og Vala keyptu fyrir 170 milljónir í Kjalarlandi Lífið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Nakinn á kóræfingu Lífið Drengurinn sem dó Lífið Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Menning Prinsinn og prinsessan ætla að flytja heim á næsta ári Lífið „Skýið er bleikt og við erum sannarlega enn þá á því skýi og í sjokki“ Lífið Fleiri fréttir Fannar og Vala keyptu fyrir 170 milljónir í Kjalarlandi Hefur verið 73 kíló í 55 ár en bætti aðeins á sig þegar bjórinn var leyfður Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Geoff og Ásta Margrét nýtt par Prinsinn og prinsessan ætla að flytja heim á næsta ári Vill 700 milljónir fyrir höllina Drengurinn sem dó Nakinn á kóræfingu Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar „Skýið er bleikt og við erum sannarlega enn þá á því skýi og í sjokki“ Síðasti leynigesturinn opinberaður „Hvernig ég er að gera þetta núna er ekki hægt til lengri tíma“ Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal X-ið bætir við sig Bolla Vaskir Valsmenn hressir á Hlíðarenda „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ „Ekki er þetta uppáhaldslagið þitt?“ Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ „Þakklát fyrir að eiga stóran orkutank inni í litlum búk“ Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Hvernig breytirðu þér í Dag Sigurðsson? Leyndardómar flugvallarins í Denver: Dómsdagsbyrgi, hakakrossar og blár hestur með rauðglóandi augu Fundu ástina í stjórnarráðinu Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Laufey gæti orðið tvöfaldur Grammy-verðlaunahafi í nótt Sjá meira
Þakkir fyrir umönnun á Fosshótel Lind Nú er liðið að lokum á áhugaverðri lífsreynslu í lífi mínu. Eftir að hafa verið greindur með Covid-19 veiruna hef ég síðastliðnar tvær vikur verið einangraður innan veggja þriggja stjörnu herbergis á FossHótel Lind við Rauðárstíg. 19. apríl 2020 17:00
Leyndardómar flugvallarins í Denver: Dómsdagsbyrgi, hakakrossar og blár hestur með rauðglóandi augu