Úrslit aukakosningana munu ráða því hvor flokkurinn fer með meirihluta í efri deildinni og þar með hversu erfitt eða auðvelt nýr forseti mun eiga með að koma stefnumálum sínum í gegn.
Talning atkvæða hefur gengið vel eftir að kjörstöðum var lokað.
Lengi framan af voru demókratarnir, Raphael Warnock og Jon Ossoff, með um tíu prósenta forystu en þegar um helmingur atkvæða hafði verið talin tóku repúblikanarnir, Kelly Loeffler og David Perdue, forskotið.
Þegar þetta er skrifað hafa um 80 prósent atkvæða verið talin og er staðan sú að Perdue hefur um 50 þúsund atkvæða forystu á Ossoff og Loeffler um 28 þúsund atkvæða forystu á Warnock.
Mikið vantraust meðal repúblikana
Þegar utankjörfundaratkvæðagreiðslu lauk höfðu 3,1 milljón Georgíubúa greitt atkvæði en samkvæmt útgönguspám var verulegur munur á því milli stuðningsmanna flokkanna tveggja hvort þeir sögðust treysta kosningunum eða ekki.
Þrír fjórðu kjósenda frambjóðenda Repúblikanaflokksins sögðust ekki treysta kosningaferlinu.
Bandaríkjaforseti og teymi hans voru enda iðnir við að varpa fram kenningum um svindl á meðan kosningarnar stóðu yfir og gerði Trump meðal annars úr því skóna að kosningavélarnar virkuðu ekki sem skyldi.
Reports are coming out of the 12th Congressional District of Georgia that Dominion Machines are not working in certain Republican Strongholds for over an hour. Ballots are being left in lock boxes, hopefully they count them. Thank you Congressman @RickAllen!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) January 5, 2021
Yfirmenn kosninganna söguð hins vegar um að ræða vandamál sem hefði verið leyst vel áður en forsetinn tjáði sig á Twitter.
Kosningarnar gengu almennt vel fyrir sig og var biðtíminn eftir að kjósa hvergi lengri en 20 mínútur.
Útgönguspár gáfu til kynna að demókrötunum hefði gengið betur meðal minnihlutahópa heldur en í kosningunum í nóvember.
Uppfært kl. 03.23:
Perdue og Loeffler hafa enn naumt forskot á andstæðinga sína þegar um 600 þúsund atkvæði eru ótalin. Samkvæmt New York Times eru flest atkvæðanna hins vegar í þéttbýlinu í kringum Atlanta og því spáir miðillinn því eins og stendur að Ossoff og Warnock muni hafa betur.
Ef úrslit ráðast með 0,5 prósent mun eða minna, er hægt að fara fram á endurtalningu.