Rúben Dias hefur gerbreytt varnarleik Manchester City liðsins á þessu tímabili og Guardiola talar nú um það að liðið geti ekki verið án hans.
Manchester City keypti Rúben Dias frá Benfica fyrir 61 milljón punda fyrir aðeins fjórum mánuðum síðan. Miðvörðurinn er þegar orðinn einn allra mikilvægasti leikmaður liðsins enda er liðið nú með bestu vörn deildarinnar og komið aftur á toppinn.
Ruben Dias has earned Van Dijk comparisons after his outstanding start and Guardiola was happy to agree https://t.co/b6UWyPga6J
— Manchester City News (@ManCityMEN) February 3, 2021
Guardiola er sammála því að koma hans sé eins og þegar Virgil Van Dijk kom til Liverpool og liðið vann í framhaldinu bæði Meistaradeildina og ensku úrvalsdeildina.
„Já, algjörlega, algjörlega,“ sagði Pep Guardiola um það hvort Rúben Dias væri líkur Virgil Van Dijk og ein mikilvægustu kaup Manchester City. „Hann hefur fallið strax inn í allt hjá okkur og hvað varðar hugarfar þá er hann gæi sem lifir fyrir starfið sitt 24 tíma á sólarhring,“ sagði Guardiola á blaðamannafundi fyrir leik Manchester City á móti Burnley í kvöld.
„Öll skrefin sem hann tekur, heima hjá sér, inn á vellinum eða utan hans, hvað hann borðar, hvernig hann sefur, hvernig hann hugar að endurheimt og undirbýr sig. Allt verður að vera fullkomið þessar 95 mínútur sem fótboltaleikurinn tekur,“ sagði Guardiola.
Það er að heyra á spænska knattspyrnustjóranum að Portúgalinn hafi verið svo gott sem fullkominn á hans fyrsta tímabili.
„Það er undir honum komið að viðhalda þessu og vonandi getum við hjálpað honum að vaxa. Við erum meira en sáttir hingað til,“ sagði Guardiola.
Guardiola has reflected on City's first half of the season, and spoken about the Stones-Dias partnership and what makes it so special #mcfc https://t.co/cE1A1p60Qt
— Manchester City News (@ManCityMEN) January 28, 2021
„Hann er ekki bara leikmaður sem spilar vel sjálfur heldur er hann leikmaður sem fær aðra leikmenn til að spila vel líka. Við erum að tala um 90 mínútur af því að tala við liðsfélagana og miðla af sér. Níutíu mínútur af því að segja félögum sínum hvað þeir eiga að gera í hverju tilfelli. Þegar slíkt er í gangi þá get ég ekki tekið hann úr liðinu. Hann er ómissandi,“ sagði Guardiola.
Dias er bara 23 ára gamall en hann hefur búið til frábært samstarf með John Stones, sem fyrir komu Portúgalans leit út fyrir að vera á leiðinni burtu frá félaginu.