Alþjóðlegi myndlistartvíæringurinn Sequences verður haldinn í tíunda sinn í október á þessu ári og verða sýnd verk eftir 27 ólíka listamenn. Sequences er afsprengi sköpunarkraftsins sem kraumar hér á landi og hefur nú fest sig í sessi sem mikilvægur vettvangur fyrir þróun myndlistar á Íslandi. Hverju sinni er teflt fram kröftugum og framsæknum sýningarstjórum en sýningastjórar hátíðarinnar að þessu sinni eru Þóranna Dögg Björnsdóttir, listakona og Þráinn Hjálmarsson, tónskáld.
Undirtitill Sequences, real time art festival, vísar til upphaflegu áherslu hátíðarinnar á tímatengda miðla og verk sem unnin eru í rauntíma.
„Hátíðin í ár beinir sjónum sínum að manngerðum tímavísum í umhverfi okkar. Til dæmis hvernig „lesa“ megi tíðarandann í almennum athöfnum okkar og af ráðandi hugmyndum í samfélaginu hverju sinni. Samfélagslegar hugmyndir og hugarfar eru síkvik líkt og samfélögin sjálf. Flæði tímans markast af endurnýjun og breytingu þessara hugmynda. Það að skapa hreyfingu á hugmyndir í samfélaginu hreyfir við tímanum.“ segir Þráinn.

Hryggjarstykki hátíðarinnar verður fjölbreytt, þverfagleg sýningar- og viðburðardagskrá með verkum eftir 27 íslenska og erlenda listamenn með ólíkan bakgrunn; danshöfunda, skáld, tónskáld, hönnuði og myndlistarmenn. Þá mun hátíðin teygja anga sína víða um borgina; Marshallhúsið úti á Granda, sem hýsir bæði Nýlistasafnið og Kling & Bang, Open, Flæði, Bíó Paradís og Ásmundarsal.
Sequences real time art festival verður haldin dagana 15. til 24. október 2021 en hátíðin hóf göngu sína árið 2006. Sequences hefur það að markmiði að vera vettvangur fyrir framsækna myndlist með sérstaka áherslu á tímatengda miðla. Almenningi gefst tækifæri á að fá innsýn inn í það sem á sér stað í samtímamyndlist á Íslandi hverju sinni auk þess sem lagt er upp úr því að vera í tengslum við alþjóðlega listamenn og flytja spennandi verk til landsins.
Að hátíðinni standa listamannareknu sýningarstaðirnir Kling & Bang og Nýlistasafnið, Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar ásamt öflugu fagráði sem í sitja listamenn og óháðir aðilar sem eru virkir í listamannareknu senunni í Reykjavík hverju sinni.

Heiðurslistamaður hátíðarinnar verður Elísabet Jökulsdóttir ljóðskáld og rithöfundur en hún á að baki langan og einstakan feril í íslensku menningarlífi.
„Verk Elísabetar eru sem barómeter á samfélagið hverju sinni. Elísabet er síkvik og örlát í umfjöllun sinni um mennskuna og með gjörningum sínum og orðlist spinnur hún þræði milli ólíkra listforma. Hún hefur rutt brautina í umræðu um geðheilbrigði og með frásögnum sínum og samtali við samfélagið gefur hún okkur tækifæri til að stækka sálina og spegla okkur í litrófi sammannlegra tilfinninga. Hún er alltaf að minna okkur á töfrana” segir Þóranna Dögg.
Nánar upplýsingar má finna á vef hátíðarinnar www.sequences.is