Verka- og láglaunafólk á enga vini í atvinnustjórnmálum Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar 10. febrúar 2021 13:45 Við sem tilheyrum stétt verka og láglaunafólks höfum lengi vitað að við erum ávallt aftast í áheyrnar-röðinni hjá þeim sem fara með völd, ef að við komumst þá í röðina á annað borð. Við vitum að allt er gert til að hlusta ekki á það sem við segjum. Við vitum að sama fólk og hreykir sér af því að allt sé hér best og skemmtilegast lætur einfaldlega eins og það taki ekki eftir því að staðan í lífi þeirra sem strita fyrir verkafólks-launum er ótrúlega erfið og hefur verið það um langt skeið. Við vitum að við þurfum að berjast fyrir bókstaflega öllu; á sama tíma og fyrirtæki sem greitt höfðu hluthöfum hundruðir milljóna í arð fengu sérstaka uppsagnarstyrki frá ríkisstjórninni tók það marga mánuði að fá sömu stjórnvöld til að hækka atvinnuleysisbætur upp í rúmar 300.000 krónur. Við vitum að þetta grimmlyndi og skeytingarleysi hefur gert það að verkum að fjöldi fólks þjáist í fátækt og þarf að leita á náðir hjálparsamtaka til að fá matvæli. Við vitum að enginn hefur gert neitt til að sporna við því að húsnæðismarkaðurinn hafi verið gróðavæddur á kostnað okkar, með hörmulegum afleiðingum, sérstaklega fyrir aðflutt verkafólk. Við vitum að eftir áratugi af striti er það oft á tíðum heilsuleysið sem bíður okkar og guð hjálpi þeirri manneskju sem send er á örorkubætur af íslenskri valdastétt. Við vitum að lífeyriskerfið er hannað til að láta okkur tapa. Við vitum allt þetta og miklu meira til; stéttskipting og misskipting hefur fengið að vaxa og dafna í gjöfulum jarðvegi áhugaleysis þeirra sem með völdin fara á okkar aðstæðum. Og þegar við erum úthrópuð sem skemmdarverkafólk fyrir það eitt að krefjast sanngjarnari launa fyrir okkar ómissandi vinnuafl kemur enginn úr röðum valdhafa okkur til varna. Og þegar við höldum mögulega að ástandið geti ekki versnað fyrir verka og láglaunafólk á Íslandi kemur í ljós að fáránleikinn getur alltaf orðið meiri. Efling hefur um langt skeið barist fyrir því að stjórnvöld, þessi sömu og gefa Bláa lóninu og Icelandair endalausa milljarða, þessi sömu og innleiða skattafslátt fyrir kaupendur hlutabréfa, uppfylli loforðið sem þau gáfu okkur um að uppræta launaþjófnað á íslenskum vinnumarkaði. Félagsmálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason, hefur haft þetta verkefni á sínu borði frá því að samningar á almenna markaðnum voru undirritaðir vorið 2019. Krafa hreyfingar vinnandi fólks hefur verið alveg skýr: Heimila skal sektir fyrir launaþjófnað, svokallað févíti. Einföld krafa og auðframkvæmanleg. Við höfum beðið lengi. Loksins er frumvarp tilbúið. En hvað kemur þá í ljós? Standa stjórnvöld við gefið loforð? Nota stjórnvöld tækifærið til að sýna vinnuaflinu vott af vinskap og virðingu? Nei, þvert á móti. Frumvarp það sem litið hefur dagsins ljós er blaut tuska í andlit þolenda launaþjófnaðar. Ég tel ólíklegt að gerendavænni lagatexti hafi verið saminn. Frumvarpið er eins og eitthvað úr Black Mirror þætti, Vinir eru hér hvergi sjáanlegir: Þolendur launaþjófnaðar eru skikkaðir til að hætta eigin atvinnuöryggi. Skriffinnsku-snillingarnir sem sömdu frumvarpið hafa skapað stórkostlega flókið ferli þar sem að vinnandi manneskja er í raun fyrirfram dæmd til að tapa. Til að mynda á þolandi launaþjófnaðar að taka þátt í „samningaviðræðum“ við þann atvinnurekanda sem stal laununum um hvort og hvernig eigi að greiða þau. Atvinnurekandinn fær einnig sjálfdæmi í einhverri fáránlegri nefnd, og fær einnig að ákveða hvort málið eigi að fara fyrir sérstakan gerðadóm. Og manneskja sem verður fyrir launaþjófnaði þarf að sætta sig við að ef búrókrötum og atvinnurekanda náðasamlegast hentar að ákvarða henni í hag þá er ekki litið til ráðningarsamnings heldur einungis lágmarkskjara á vinnumarkaði. Jafnvel þegar hún „vinnur“ er hún dæmd til að tapa. Og í frumvarpinu er ekki minnst á FÉVÍTI en um það snérist krafa verkalýðshreyfingarinnar. Í stað þess að uppfylla loforðið sem gefið var hefur verið sett saman einhver kerfis-ófreskja með það eitt markmið að tryggja áframhaldandi ægivald eigenda atvinnutækjanna yfir vinnuaflinu. Við sem tilheyrum stétt verka og láglaunafólks höfum lengi vitað að við erum ávallt aftast í áheyrnar-röðinni hjá þeim sem fara með völd. Við vitum að allt er gert til að hlusta ekki á það sem við segjum. Við sköpum með vinnu okkar hagvöxtinn í uppsveiflunum en okkur er hent á öskuhaugana um leið og að kreppir. Við erum sögð óvinir Íslands þegar við berjumst fyrir bættum kjörum og þegar enga vinnu er að fá lætur valdastéttin sem hún sjái ekki matar-biðraðinar sem hluti okkar þarf að standa í. Stór hópur okkar á erfitt með að láta enda ná saman. Andlegri heilsu okkar fer hrakandi. Lífslíkur verka og láglaunakvenna fara minnkandi en það veldur nákvæmlega engu samfélagslegu uppnámi. Þúsundir okkar búa í iðnaðarhúsnæði, þar sem að eldvörnum er ekki sinnt. Börn okkar klára síður nám, vegna þess að þau þurfa sjálf að vinna fyrir sér, tekjur okkar duga ekki til að tryggja þeim aðgang að lífsgæðakapphlaupi ungs fólks á Íslandi. Við erum þolendur launaþjófnaðar (hefur einhver heyrt af millistéttarfólki sem þarf að berjast mánuðum saman fyrir því að fá rétt laun fyrir sína unnu vinnu?) og hvað gera stjórnvöld þegar við krefjumst úrbóta: Senda okkur fingurinn og segjast vera vinir okkar um leið og þau gera það. Hvaða máli skiptir verkafólk fyrir atvinnu-stjórnmálafólk? Greinilega engu. Þrátt fyrir að við knýjum áfram hjól atvinnulífsins í uppsveiflu og tökum á okkur byrðarnar í niðursveiflu vottar ekki fyrir þakklæti í okkar garð hjá þeim sem ráða. Við þurfum að berjast fyrir bókstaflega öllu. Meira segja því að samningar haldi; mánuðum saman barðist íslensk auðstétt fyrir því að hafa af okkur umsamdar launahækkanir og enginn úr röðum valdhafa steig fram til að standa við hlið vinnuaflsins í þeim slag. Það lýðræði sem við búum við er ekkert nema afbökum á raunverulegu lýðræði. Það lýðræði sem við búum við snýst fyrst og síðast um að valda ekki uppnámi í tilveru þeirra sem tilheyra eignastéttinni. Þegar valdastéttin talar fjálglega um stöðugleika er hún aðeins að tala um stöðugleika hjá þeim sem eiga og mega. Verka og láglaunafólk er ekki einu sinni með í dæminu. Ekkert er augljósa á þessum tímapunkti. Við erum ekki virt viðlist, grundvallarkröfum okkar er kastað út á hafsauga. Engin samningsvilji er til staðar, engin sáttahönd útrétt. Hvað getum við gert? Það mikilvægasta er horfast í augu við stöðuna. Við þurfum að horfa á gjörðir þeirra sem ráða, ekki láta blekkjast af orðum þeirra. Ég lét sjálf blekkjast af orðum félagsmálaráðherra þegar hann lofaði að verða við kröfunni um févíti. Ég mun ekki láta blekkjast aftur. Við þurfum að standa saman, við sem fædd erum hér og við sem aðflutt erum. Lýðræðið sem við búum við er vissulega afbökun á draumi alþýðu-fólks um lýðræði. En við getum samt notað það til að senda skilaboð. Til að berjast fyrir okkar hagsmunum. Vegna þess að enginn mun gera það fyrir okkur. Það er morgunljóst. Ef við ætlum að fá það sem við eigum inni í þessu samfélagi þurfum við að berjast áfram, berjast saman. Segja hátt og skýrt frá því sem við stöndum frammi fyrir, þeim vandamálum sem við glímum við, þeim svikum sem við verðum fyrir. Setja fram kröfur og gefast ekki upp fyrr en sigur er í höfn. Og með því sendum við valdastéttinni þessi skilaboð: Sá tími er liðinn að þið getið komið fram við okkur eins og skít. Vald ykkar yfir okkur fjarar út, hratt og örugglega. Þið eruð á valdi sjálfsblekkingar ef þið haldið að þið getið svikið okkur um réttlæti. Við ÆTLUM okkur að innheimta það sem okkur er skuldað. Höfundur er formaður Eflingar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sólveig Anna Jónsdóttir Kjaramál Skoðun: Kosningar 2021 Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Tuttugu ár í þjónustu samfélagsins Árni Hrannar Haraldsson skrifar Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson skrifar Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinnar við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinnar við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun