„Hann er hrifinn af Manchester United en vill komast til Klopp hjá Liverpool“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. mars 2021 08:01 Kylian Mbappe með Jürgen Klopp fyrir leik Paris Saint-Germain á móti Liverpool á Anfield. Getty/Alex Livesey Orðrómurinn um Kylian Mbappe og Liverpool verður bara sterkari og sterkari en miklar líkur er á því að franski framherjinn yfirgefi Paris Saint Germain í sumar.
Kylian Mbappe er frábær fótboltamaður sem á líka framtíðina fyrir sér í boltanum. Hann er þegar orðinn einn af bestu knattspyrnumönnum heims og á enn átta ár eftir í þrítugsafmælið. Það er því ekkert skrýtið að stærstu félög heims hafi áhuga á honum. Real Madrid hefur ekki farið leynt með aðdáun sína á Kylian Mbappe og hafa lengi verið í forystunni í kapphlaupinu um hann samkvæmt erlendum fjölmiðlum. Mbappe fór hins vegar á sínum tíma til PSG og nú gæti hann líka farið annað. Samkvæmt nýjustu vangaveltum í erlendum blöðum þá eru núna taldar mestar líkur á því að hinn 22 ára gamli Kylian Mbappe endi hjá Liverpool. He likes Manchester United as a club, but his preference would be to work with Jurgen Klopp at Liverpool https://t.co/HlbdF8CpHM— SPORTbible (@sportbible) March 3, 2021 Blaðamaðurinn Duncan Castles ræddi framtíð Frakkans í hlaðvarpsþættinum Transfer Window Podcast og að Mbappe sé tilbúinn að fara frá PSG í sumar. „Eins og við höfum sagt frá þá vill hann [Mbappe] komast í aðra af stærstu deildunum til að taka næsta skref á sínum ferli,“ sagði Duncan Castles. „Ef hann fer í ensku úrvalsdeildinni þá var mér sagt að óskaliðið hans sé Liverpool. Hann er hrifinn af Manchester United sem klúbbi en vill frekar fá að vinna með Klopp hjá Liverpool,“ sagði Castles. Castles segir að það komi líka til greina hjá Kylian Mbappe að fara til Spánar. „Þar kemur Barcelona til greina en þar kemur inn í mikil fjárhagsvandræði klúbbsins sem og að Real Madrid er búið að eltast við hann síðan áður en hann fór til PSG,“ sagði Duncan Castles. Það er ljóst að ef Liverpool ætlar að næla í Kylian Mbappe í sumar þá er eins gott að liðið endi í einu af fjórum efstu sætunum og verði með í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. Það er ekki líklegt að maður eins og Mbappe sætti sig við Evrópudeildarfótbolta tímabilið 2021-22.
Enski boltinn Mest lesið Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Lokahófi HSÍ aflýst Sport Unnu sinn fyrsta Evróputitil í kveðjuleik Glasners Fótbolti FH-ingar boða til blaðamannafundar Handbolti Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Neitaði að taka í hönd hennar: „Væri til skammar að svindla svona“ Sport Barcelona búið að landa Gordon Enski boltinn Fleiri fréttir Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport Sjá meira