Man. Utd ræður yfirmann knattspyrnumála í fyrsta sinn Sindri Sverrisson skrifar 10. mars 2021 12:45 John Murtough og Darren Fletcher ráða miklu um þróun Manchester United næstu árin. Getty/Ash Donelon Enska knattspyrnufélagið Manchester United kynnti í dag skipulagsbreytingar hjá fyrirtækinu sem meðal annars fela í sér ráðningu yfirmanns knattspyrnumála, í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Það er John Murtough sem verður yfirmaður knattspyrnumála en hann hefur starfað hjá United frá árinu 2014. Hann verður þar með nánasti yfirmaður Ole Gunnars Solskjær, knattspyrnustjóra United. Murtough hefur verið yfirmaður þróunardeildar hjá United og mun nú bera ábyrgð á öllum atriðum sem tengjast fótboltanum hjá liðum félagsins. We are pleased to announce the appointment of John Murtough as the club's new Football Director, and Darren Fletcher as Technical Director.#MUFC— Manchester United (@ManUtd) March 10, 2021 Matt Judge verður hins vegar áfram með umsjón með kaupum og sölum á leikmönnum, og samningum við leikmenn, í samráði við Solskjær, en nú með Murtough sem yfirmann. Darren Fletcher, sem vann fimm Englandsmeistaratitla og Evrópumeistaratitil sem leikmaður liðsins, kom inn í þjálfarateymi United í janúar en hefur nú verið ráðinn í nýtt starf sem fræðilegur stjóri (e. technical director). Fletcher mun meðal annars einbeita sér að langtímaþróun leikmanna og leikmannahópsins í heild, og brúa bilið á milli yngri liða félagsins og aðalliðsins. United hefur því ekki ráðið inn nýja menn en breytt starfstitlum og hlutverkum þeirra sem fyrir eru.
Enski boltinn Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Sjá meira