Má dæma aftur eftir að hafa ógnað leikmanni Ipswich Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. mars 2021 08:00 Darren Drysdale reiddist eftir kröfug mótmæli Alans Judge, leikmanns Ipswich Town. Darren Drysdale má dæma á ný eftir að hafa ógnað leikmanni Ipswich Town í leik gegn Northampton í síðasta mánuði.
Undir lok leiksins lenti Drysdale og Ipswich-manninum Alan Judge saman eftir að sá síðarnefndi mótmælti því að hafa gerst sekur um leikaraskap. Mótmæli Judges fóru illa í Drysdale sem virtist nudda höfði sínu upp við höfuð Judges og var með ógnandi tilburði sem eru sjaldséðir hjá dómara. Drysdale fékk svokallað afturvirkt bann fyrir framkomu sína sem gilti frá 19. febrúar til 10. mars. Honum er hins vegar frjálst að dæma á ný frá og með næstu helgi. Drysdale játaði að hafa brotið reglur enska knattspyrnusambandsins. Auk þess að fá afturvirkt bann fékk hann viðvörun vegna framkomu sinnar. Hann sagðist aldrei hafa fengið yfir sig viðlíka fúkyrðaflaum á ferlinum og frá Judge sem varð til þess að hann snöggreiddist. Drysdale sagði að Judge hafi sagt að hann væri sköllóttur og svindlari í þokkabót. Judge hafnar því alfarið að hafa notað þessi orð.
Enski boltinn Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Sjá meira