Tiltölulega róleg nótt á Reykjanesskaga Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 15. mars 2021 06:27 Frá svæðinu sunnan við Fagradalsfjall þar sem mikil skjálftavirkni hefur verið undanfarið. Vísir/Vilhelm Nóttin var tiltölulega róleg á Reykjanesskaga miðað við hvernig verið hefur undanfarið sé litið til fjölda skjálfta frá miðnætti og þess hversu margir þeirra voru stærri en þrír.
Aðeins einn skjálfti af þeim rúmlega 600 skjálftum sem mælst hafa frá miðnætti var stærri en þrír. Hann varð klukkan 1:20 í Nátthaga, 3,8 kílómetra suður af Fagradalsfjalli á fimm kílómetra dýpi. Einar Hjörleifsson, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, svarar játandi þegar blaðamaður spyr hvort nóttin hafi verið „extra“ róleg. „Það voru fjórir skjáltar í gærkvöldi frá 3,3 til 3,6 að stærð en það er bara búið að vera fremur rólegt núna í nótt. Vonandi gátu allir sofið vel. En það er ennþá stöðug smáskjálftavirkni á svæðinu og við teljum að enn geti komið gikkskjálftar og að atburðurinn sé enn í gangi,“ segir Einar. Ekki sé byrjað að gjósa á svæðinu og þá mælist ekki órói. Einar segir að vísindaráð almannavarna muni funda klukkan ellefu í dag. Þá verða komnar niðurstöður úr nýjum gervihnattamyndum sem komu í gærkvöldi. Í gær mældust rétt rúmlega 3000 jarðskjálftar á Reykjanesskaga með sjálfvirka jarðskjálftakerfi Veðurstofunnar. Stærsti skjálftinn mældist klukkan 14:15 og var 5,4 að stærð með upptök um 2,5 km vestur af Nátthaga.
Eldgos og jarðhræringar Jarðhræringar á Reykjanesi Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira