Innlent

Varð 3,5 milljónum króna ríkari eftir ferð á bensínstöð

Eiður Þór Árnason skrifar
Dregið var í Víkingalottóinu í kvöld.
Dregið var í Víkingalottóinu í kvöld. Vísir/vilhelm

Einn heppinn miðahafi vann rúmar 3,5 milljónir í Víkingalottó í kvöld þegar hann fékk hinn alíslenska þriðja vinning. Vinningsmiðinn var keyptur í N1 á Ártúnshöfða í Reykavík.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá. Fyrsti vinningur í Víkingalottó gekk ekki út að þessu sinni en tveir heppnir Norðmenn skiptu með sér öðrum vinningi og hlýtur hvor um sig rúmar 35 milljónir króna í vinning.

Fjórir voru með fjórar tölur réttar í réttri röð í Jóker og fær hver þeirra 100 þúsund krónur í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir á N1 á Ísafirði, Krambúðinni á Flúðum, N1 á Borgarnesi og á N1 í Vestmannaeyjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×