Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.
Hvenær vaknar þú á morgnana?
„Ég er algjör morgunhani og færist enn meira í þá átt eftir því sem árin líða. Vakna nánast alla morgna klukkan sex og finnst það alveg frábært, ekki síst að finna orkuna í vaxandi birtu.
Eini gallinn er náttúrlega sá að maður getur ekki lengur sofið frameftir þegar það er hægt.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?
Mér þykir óskaplega vænt um þessa stund sem ég á í kyrrð með sjálfri mér. Ég helli alla morgna upp á persneskt te fyrir manninn minn sem vaknar seinna en þá er það orðið verulega sterkt og gott. Svo hugleiði ég og gef sjálfri mér góðan og helst fallega útlítandi morgunmat.
Ég get ekki hugsað mér að hefja daginn án þessa rituals og skanna í leiðinni helstu fréttir, bæði heima og alþjóðlega, frá því að ég slökkti á mér kvöldið áður.“
Ef þú gætir farið í ferðarlag í dag, hvert sem er í heiminum, hvert myndir þú fara?
„Ég myndi fara til Íran. Það er orðið löngu tímabært að heimsækja aftur þetta dásamlega fallega land. Persneska nýárið er einmitt núna þessa helgi á vorjafndægri og þá er haldin mikil veisla.
Maðurinn minn Ali Parsi er upprunalega frá Íran og á þar yndislega fjölskyldu. Við erum einmitt að skipuleggja hópferð þangað með góðum vinum. En í raunheimum verður hún líklega ekki farin fyrr en á næsta ári.“

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?
„Stóra verkefnið okkar í Hörpu er að vinna með allar takmarkanirnar sem COVID-19 setur okkur. Ég ætla að leyfa mér að segja að starfsfólkið í Hörpu sé hreinlega á heimsmælikvarða þegar kemur að viðburðahaldi og þar með þessu ótrúlega flókna og síkvika verkefni að halda úti menningarstarfsemi og öðrum viðburðum á erfiðum tímum.
Þetta hefur tekist ótrúlega vel vegna þess að allir eru á tánum og gera sitt allra besta eins og nýjustu dæmin sanna. Við erum líka komin á fulla ferð með að skipuleggja tíu ára afmæli Hörpu sem við fögnum með alls konar skemmtilegheitum frá vorinu.
Á persónulegum nótum er helsta verkefnið að verja það sem ég kalla í gamni og alvöru doktorsritgerðina mína í Pollýönnu, þökk sé COVID og ýmsu öðru, en ég var til skamms tíma aðeins með hógvært grunnskólapróf í þeim fræðum.“
Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?
„Dýrmæta morgunstundin er lykillinn að skipulagi dagsins. Ég fer yfir tölvupósta, verkefnin framundan og stilli mig inn á það sem ég vona að sé rétta orkan fyrir vikuna eða daginn. Svo fer auðvitað allt öðru vísi! Þá er aðalatriðið að halda ró sinni, hlusta, hlusta, og hlusta enn betur og taka svo góða ákvörðun.“
Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?
„Hin hliðin á morgunhananum er að ég er ansi kvöldsvæf og finn ótrúlega mikinn mun á gæðum svefnsins eftir því hvenær maður sofnar. Helst vil ég vera sofnuð uppúr klukkan tíu.
Við félagarnir, það er ég og maðurinn minn, erum aðeins á ólíkum tímabeltum að því leyti að hann er algjör nátthrafn og því erum við orðin ansi flínk í að stilla okkur inn á sameiginlegan miðbaug þar sem bæði eru í toppformi!“