Innlent

Sérstakt eftirlit með sóttkvíarreglum við gosstöðvarnar

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Eldgos í Geldingadal á Reykjanesi
Eldgos í Geldingadal á Reykjanesi Vilhelm Gunnarsson

Virkt eftirlit var tekið upp á gossvæðinu í gær til að koma í veg fyrir að fólk sniðgangi sóttkví til að berja gosið augum. Lögreglan á Suðurnesjum þurfti að loka Suðurstrandavegi tímabundið í dag vegna fjölda bifreiða og verður svæðinu lokað klukkan níu í kvöld.

Þúsundir heimsóttu gosstöðvarnar í dag enda var ágætis veður á svæðinu þrátt fyrir snjó og frost. Lögreglan á Suðurnesjum opnaði fyrir umferð um Suðurstrandaveg að svæðinu upp úr klukkan níu í morgun en þá hafði vegurinn verið lokaður í tæpan sólarhring vegna vonskuveðurs. Um fimm hundrað bílastæðum var fjölgað á svæðinu í dag og stýrði lögregla umferð.

Loka fyrir umferð klukkan níu

Lögreglan lokaði svo veginum um tíma í dag þar sem öll bílastæði voru full og verður svæðinu svo aftur lokað klukkan níu í kvöld. Er það gert af öryggisástæðum þar sem þörf er á að hvíla björgunarliða sem staðið hafa vaktina í rúma viku.

Sérstakt eftirlit með sóttkvíarreglum

Áhyggjur hafa verið uppi um að fólk komi beint frá útlöndum að gossvæðinu og sniðgangi sóttkví. Virkt eftirlit með þessu var tekið upp í Leifsstöð og við stikuðu leiðina að gossvæðinu í gær.

„Þeir sem sinna eftirliti í flugstöð hafa sagt okkur það að þeir sem ætla að dvelja hér í tvo til fimm sólarhringa, þetta eru einstaklingar sem eru bólusettir eða hafa áður fengið Covid,“ sagði Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum.

Ekkert bendir til að gosið sé að klárast

Í nótt munu sérfræðingar á Veðurstofunni kanna hvort dregið hafi úr virkni eldgosins en óróamælingar gætu bent til þess þó of snemmt sé að fullyrða það. Ekkert bendir þó til að gosið sé að klárast.

Eldfjallahópur Háskóla Íslands telur að gígarnir tveir muni brátt sameinast í einn. Hraun hefur nú þakið botna Geldingadala og er það orðið fimmtán metra þykkt.

Eldfjallafræðingur við Háskólann í Leeds segir að ef gosið haldi áfram næstu sjö daga muni hraunið flæða í Meradali. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×