Stærsti jarðskjálfti síðan fjórum dögum fyrir gos Kristín Ólafsdóttir skrifar 20. apríl 2021 23:08 Frá gosstöðvunum við Fagradalsfjall. Jarðskjálftinn í kvöld varð skammt frá fjallinu Þorbirni, sem er í grennd við gosstöðvarnar og Grindavík. Vísir/vilhelm Snarpur jarðskjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu og víðar á suðvesturhorninu nú skömmu eftir klukkan ellefu í kvöld. Skjálftinn var 4,1 að stærð, að því er fram kemur í tilkynningu frá Veðurstofunni.
Salóme Jórunn Bernharðsdóttir náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir í samtali við Vísi að upptök jarðskjálftans hafi verið um þrjá kílómetra norðaustan af fjallinu Þorbirni á Reykjanesskaga. Skjálftinn er jafnframt sá stærsti sem mælst hefur á Reykjanesskaga síðan 15. mars, eða fjórum dögum áður en eldgosið við Fagradalsfjall hófst. Nokkrir eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið nú á tólfta tímanum. Innt eftir því hvort skjálftinn gæti tengst hræringum á gosstöðvunum, eða jafnvel verið undanfari einhverra breytinga, segir Salóme erfitt að segja til um það. „Við höfum verið að sjá skjálfta á þessu svæði þannig að eins og er þá er þetta bara flekahreyfingar en svo þurfum við bara að sjá hvað gerist í kjölfarið,“ segir Salóme. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu fannst skjálftinn vel víða á höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesskaga. Þá hefur Veðurstofan fengið tilkynningar um að íbúar allt austur á Hellu og norður í Grundarfjörð hafi fundið fyrir skjálftanum. Staðsetning skjálftans sést hér merkt með grænni stjörnu á korti Veðurstofunnar. Fréttin var síðast uppfærð klukkan 23:50.
Eldgos og jarðhræringar Eldgos í Fagradalsfjalli Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Sjá meira