Það er enginn glæpur að vera sjúklingur eða fátækur Jóhann Sigmarsson skrifar 24. apríl 2021 10:01 Við viljum að lágmarkslífeyrir öryrkja og eldri borgara fylgi lágmarkslaunum á almennum vinnumarkaði. Það hefur verið staðreynd um margra ára skeið að lágmarkslífeyrir öryrkja og eldri borgara sé allt of lágur miðað við verðlag. Um miðjan hvern mánuð verður fólkið oftast peningalaust og þarf þá oft að taka lán í banka ef það getur, smálán með ýmsum leiðum eða stóla á ættingja og vini. Það fer ekki vel ofan í veikindi að þurfa alltaf að vera blankur í ofanálag. Það hrannast upp skuldir vegna þessa. Viðkomandi getur jafnvel ekki greitt skuldir sínar út af lífeyrinn er allt of lágur. Í mörgum tilvikum eru þetta líka opinber gjöld s.s. frá ríki eða sveitarfélagi. Þessi gjöld eru send í innheimtu hjá einkafyrirtækjum og hækka verulega. Fólkið er þá hiklaust sett inn á vanskilaskrá hjá Creditinfo að minnsta tilefni fyrir að geta ekki borgað. Þar með eru sjúklingarnir orðnir ógjaldgengir um lánshæfi og að eiga eitthvað í samfélaginu. Creditinfo er einkafyrirtæki sem að safnar persónulegum upplýsingum um fólk og má efast um lögmæti þess. Það er enginn glæpur að vera sjúklingur eða fátækur. Hafa öryrkjar og eldra fólk tekið upp á því að dvelja í öðru landi hluta árs út af það getur hreinlega ekki lifað á lífeyri hérna. Tryggingastofnun hefur þá njósnað um ferðir fólks erlendis. Persónuvernd hefur almennt gert athugasemdir við svona löguðum vinnubrögðum og njósnum stofnunarinnar. Stjórnvöld í þessari ríkisstjórn hafa ásakað fólk að vera beita bótasvikum til að verða sér út um pening frá hinu opinbera. Þó nokkrir hafa gefist upp og tekið eigið líf. Það má hugsa um það hverjir svíkja raunverulega út fé í stórum stíl frá hinu opinbera og hafa gert það yfir langt tímabil. Veiku fólki er varla stætt á að leita réttar síns Stjórnvöld vilja ekki fleiri öryrkja og taka upp á því að setja lögfræðinga og kerfiskúka í stöður þar sem að læknar og fólk úr heilbrigðisgeiranum ættu að vera. Þessum lögfræðingum er alveg sama þó þeir brjóti lög um almannatryggingar í landinu. Veiku fólki sem þarf á hjálp að halda er varla stætt á að leita réttar síns og það vita þessir lögfræðingar. Ein aðferðin er þannig að svara ekki erindum og símtölum til tefja eða vísa máli frá. Valdið er ofurefli og grimmt, kerfið er of stórt til að eiga við fyrir sjúklinga sem að gefast yfirleitt upp. Stjórnvöld hafa margsinnis sagt að heilbrigðiskerfið sé eitt það besta í heiminum sem að er stór lýgi og klisja ráðamanna til að bægja umræðunni frá raunverulegum vanda. Við viljum að aukið fé verði sett í viðeigandi sjúkraþjálfun- eða meðferð og í endurhæfingu vegna tímabundinnar örorku til að aðstoða einstaklinga aftur út á vinnumarkaðinn. Framlög til heilbrigðisstofnanna verði aukin og hjúkrunarrýmum fjölgað um allt land. Læknar við Landspítala hafa gagnrýnt stjórnvöld harðlega fyrir krónískt fjársvelti til spítalans og heilbrigðiskerfisins. Stjórnmálamenn hafa ekki staðið við loforð sín um að efla kerfið. Það var sett aukið fé í spítalann síðastliðinn vetur, en það fór meginpartur í nýjar skrifstofur til að sinna yfirmönnum og til að auka á skrifræðið. Hvort ætli sé mikilvægara fyrir þjóðina að hafa heilbrigðisstarfsfólk og tæki til að sinna sjúklingum sem á þurfa að halda eða bæta á yfirstjórnina? Mynd/Sigurður Þór Helgason Sjúkrarúmin út um allt á ganginum Fyrir rúmlega einu og hálfu ári síðan fékk konan mín í magann á þriðjudagskvöldi. Við höfðum nokkrum vikum áður misst fóstur. Við fórum upp á slysadeild í Fossvoginum um klukkan átta um kvöldið. Við urðum að bíða þar til um níu morguninn eftir á biðstofunni og þá fórum við á opinn gang með nokkrum sjúkrarúmum. Gangurinn leit út eins og geymsla fyrir gamalt dót. Það er ekki elskulegu starfsfólki og læknum þar um að kenna sem að standa bliktina eins og hetjur. Niðurskurður og siðblinda skriffinskunnar í heilsukerfinu Það er stjórnvöldum um að kenna að heilsukerfið sé í rúst. Það lítur einnig þannig út að kunnir þingmenn og ráðherrar vilji einkavæða hluta spítalans. Þeir ætla sér að gera það með fjársvelti til að geta bent á að spítalinn virki ekki sem skildi og betra sé að einkavæða hann. Það væri til þess gert að valið fólk úr viðskiptalífinu geti sogið fé frá skattgreiðendum í sína einkavasa. Það á ekki að einkavæða neitt sem að viðkemur heilsu fólks. Eiginlega ef það er hugsað út í það þá er eins og að sumir embættismenn, þingmenn og ráðherrar séu einkavæddir af viðskiptaelítunni. Það sama má segja um sjúkraþjálfun- eða meðferð og endurhæfingu sem að er fráleit í landinu vegna niðurskurðar og siðblindu skriffinskunnar. það eru mánaðar eða áralangir biðlistar út af því að fæturnir eru skornir af starfseminni frá stjórnvöldum. Persónulega hef ég orðið vitni af því þegar að ráðgjafi í Virk starfsendurhæfingasjóði laug skriflega í skýrslu til að geta bægt umsókn frá. Við viljum að tannlækningar öryrkja og eldri borgara verði gjaldfrjálsar. Fyrir hvern og einn er almenn greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga Íslands nú 57% af umsömdu verði vegna kostnaðar við tannlækningar skv. samningnum. Ef að við förum til Þýskalands þá er nánast allt frítt þar sem viðkemur læknaþjónustu, þar með taldar tannlækningar. Ferðalög eru þar einnig frí og viðkomandi getur tekið fylgdarmann með sér. Það gildir um allar ferðir hvort sem það er með lest, rútu, strætó, sporvagni, leigubíl, skipi eða flugi. Þú skilar inn kvittunum til heilbrigðisþjónustunnar og færð þær greiddar og lagðar inn á reikning þinn. Þar getur viðkomandi fengið skirteini frá þarlendum yfirvöldum, ef er búið að sjúkdómsgreina hann yfir 75% öryrkja eða meira. Framvísun þýðir að nánast allt sé borgað af ríkinu og að öll gjöld, allar sektir og aðrar skuldir séu feldar niður hjá hinu opinbera. Ísland er aðili að EES samningnum og notar 80% af regluverki Evrópusambandsins vegna þessa ættu þær reglur að gilda um Ísland líka. Flokkarnir hafa blásið báknið upp Íslenskir yfirmenn stofnana, embættismenn, þingmenn eða ráðherrar, þetta fólk getur logið að þér ef það hentar horfandi samviskulega í augun á þér, án þess að blikkna. Þetta fólk þarf ekki á almenningi að halda nema á fjögurra ára fresti og þá byrjar það aftur á sömu fallegu lýginni um að allt verði nú gott. Öll stefnumál eru svo sett aftur á botninn í sömu skúfunni og þau komu upp úr. Geymd þar til að kosningar verða að nýju. Í öðrum lýðræðisríkjum segja embættismenn, þingmenn eða ráðherrar af sér fljótlega eftir að kemst upp um hverskyns minnstu vanhæfi í starfi. Það á ekki við um Ísland. Hér situr fólk sem fastast ef það verður uppvíst af svikum og reynir að réttlæta ranglætið með einhverjum hætti. Það viðurkennir ekki mistök og jafnvel heldur áfram á sömu braut með grófari hætti en áður. Það er ekki hægt að reka þingmann fyrir afglöp í starfi. Þingmaður verður sjálfur að segja af sér. Kjósendur geta kosið þá af þingi. Það ætti að loka á pólitískt skipaðar stöður og embætti á vegum ráðherra, ráðuneyta, þingmanna og stjórnmálaflokka. Það verður að vera ljóst að kjörnir þingmenn, embættismenn og ráðherrar eru til að þjóna almenningi í landinu, en ekki öfugt. Báknið hefur aftur á móti blásið út í kringum Alþingi og Sveitarfélög síðustu ár sem að er orðið mjög dýrt og óbærileg stífla fyrir almenning. Höfundur er listamaður, kvikmyndagerðarmaður og formaður Landsflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Kosningar 2021 Heilbrigðismál Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Skoðun Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Tuttugu ár í þjónustu samfélagsins Árni Hrannar Haraldsson skrifar Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson skrifar Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinnar við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinnar við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun