Reynir allt til að halda Cavani Sindri Sverrisson skrifar 30. apríl 2021 08:01 Edinson Cavani fagnar öðru marka sinna á Old Trafford í gær en þarf að ímynda sér hvernig væri að skora þar fyrir framan 74 þúsund áhorfendur. AP/Jon Super Ole Gunnar Solskjær hefur reynt allt til að sannfæra Edinson Cavani um að halda kyrru fyrir hjá Manchester United og spila með liðinu á næstu leiktíð. Úrúgvæinn er hins vegar efins um að hann vilji verja öðru ári á Englandi.
Solskjær var spurður út í Cavani eftir að markahrókurinn skoraði tvö mörk, átti tvær stoðsendingar og fiskaði víti í 6-2 sigri United á Roma í gær. Cavani kom til United í október og skrifaði undir samning sem gildir til loka leiktíðarinnar, með möguleika á eins árs framlengingu sem hann er ekki viss um að vilja nýta. „Hann veit hvað mér finnst,“ sagði Solskjær um Cavani. „Hann veit að ég myndi elska það að hafa hann áfram hérna.“ Lofaði honum að Old Trafford yrði allt annar staður Ljóst er að argentínska félagið Boca Juniors vill fá hinn 34 ára gamla Cavani heim til Suður-Ameríku en Solskjær hefur meðal annars reynt að benda honum á hve allt öðruvísi verði að spila á Old Trafford á næstu leiktíð, með áhorfendur í stúkunum. „Edinson er meira en bara maður sem potar inn mörkum. Hann er frábær í að hlaupa í auðu svæðin, vera miðpunktur í spilinu og fá aðra með í það,“ sagði Solskjær og kvaðst algjörlega í skýjunum með Cavani. „Vonandi fáum við að sjá hann hér í eitt ár til viðbótar. Ég er að gera mitt besta. Ég lofaði honum því að Old Trafford væri allt annar staður með stuðningsmenn á svæðinu,“ sagði Solskjær. Cavani hefur skorað 12 mörk á leiktíðinni, þar af fimm í síðustu fimm leikjum.
Enski boltinn Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Fleiri fréttir Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Sjá meira