Austlægar áttir og gengur á með skúrum eða slydduéljum Atli Ísleifsson skrifar 14. maí 2021 07:25 Reikna má með norðaustlægum vindi á morgun. Vísir/Vilhelm Enn liggur víðáttumikið hæðasvæði yfir Grænlandi og Íslandi, en dýpkandi lægð, langt suður í hafi þokast austur. Austlægar áttir leika því um landið og gengur á með skúrum eða slydduéljum, síst þó fyrir norðan.
Frá þessu segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Á morgun sé lægðin djúpa komin að Írlandi og verði þá vindur norðaustlægari á okkar slóðum. „Búast má við dálitlum skúrum eða éljum víða um land, en bjartviðri sunnan- og vestanalands. Eins og undanfarið er svalt á landinu, þó að hiti getur farið nærri 10 stigum syðra, þegar best lætur. Ekki er að sjá neinar veðurbreytingar á sunnudag, nema að mögulega bætir í úrkomu eystra. Þrátt fyrir skúraleiðingar dagsins verður gróður sunnan- og vestanlands áfram mjög þurr um helgina og fólk er því hvatt til að fara varlega með eld.“ Spákortið fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Norðaustan 5-13 m/s. Skýjað og sums staðar dálítil él norðaustanlands, en annars bjart með köflum. Hiti 1 til 9 stig yfir daginn, en víða næturfrost. Á sunnudag: Norðaustanátt, skýjað og lítilsháttar rigning eða slydda austanlands, annars þurrt að mestu. Hiti 0 til 8 stig, hlýjast syðst. Á mánudag og þriðjudag: Norðaustananátt, úrkomulaust að kalla og áfram svalt í veðri. Á miðvikudag og fimmtudag: Útlit fyrir svala norðlæga átt, dálítli él á N-verðu landinu, en bjartviðri syðra.
Veður Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Fleiri fréttir Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Sjá meira