ESB opnar landamærin fyrir bólusettum Samúel Karl Ólason skrifar 19. maí 2021 10:51 Starfsmenn í ferðaþjónustu undirbúa baðstrendur í Frakklandi. EPA/SEBASTIEN NOGIER Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur tekið þá ákvörðun að opna landamæri ríkjasambandsins fyrir ferðamönnum sem hafa verið bólusettir að fullu. Þessi ákvörðun var tekin í morgun en hefur ekki verið tilkynnt opinberlega þar sem ákvörðunin hefur ekki verið staðfest af erindrekum aðildarríkja ESB.
AFP fréttaveitan hefur þó eftir heimildarmönnum sínum að breytingarnar verði að öllum líkindum staðfestar. Einnig stendur til að taka við ferðamönnum frá ríkjum þar sem færri en 75 af hverjum hundrað þúsund íbúum eru smitaðir. Ekki liggur fyrir hvenær breytingin mun taka gildi. Forsvarsmenn hvers aðildarríkis fyrir sig eru sagðir eiga að taka ákvörðun um hvaða sönnun ferðalangar þurfa að færa fyrir því að þau hafi verið bólusett. Umræddir ferðalangar þyrftu þó að sanna að þeir hefðu verið bólusettir með bóluefni sem hefur fengið heimild til notkunar í sambandinu. Bóluefni frá Rússlandi og Kína hafa ekki fengið þá heimild. Takmarkanir hafa verið á ferðalögum til Evrópusambandsins í rúmt ár en samkvæmt núgildandi reglum er ferðalöngum frá einungis sjö ríkjum í heiminum heimilt að ferðast til aðildarríkja. Ráðamenn í ríkjum eins og Frakklandi og á Spáni höfðu þegar tilkynnt að til stæði að taka við bólusettum ferðamönnum í sumar.
Evrópusambandið Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Innlent Sundlaugargestur handtekinn Innlent Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Innlent Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Innlent Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Innlent „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Innlent Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Innlent „Það bjó enginn í húsinu“ Innlent Íþróttafélag kært fyrir að bjóða upp á áfengi utandyra Innlent Fleiri fréttir Evrópuleiðtogar fylkja liði í Hvíta húsið Trump sagður hlynntur afsali lands Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sjá meira