Sigríður sóttist eftir öðru sæti á lista flokksins í öðru Reykjavíkurkjördæmanna en til þess að ná því þyrfti hún að enda í þriðja eða fjórða sæti í prófkjörinu. Eins og er er hún í áttunda sæti og yrði væntanlega boðið fjórða sætið á lista annars kjördæmisins.
Spurð hvort hún myndi þiggja fjórða sæti segir hún: „Nú veit ég ekki einu sinni hvernig kjörnefnd metur þetta og svona þannig ég get engu svarað um það. Og það er nú ekki einu sinni búið að telja helming atkvæða.“
Á ekki von á að listinn breytist mikið
Þegar fyrstu tölur voru birtar klukkan 19 voru rúmlega fimmtán hundruð atkvæði talin og var Sigríður þá í 8. sæti. Engar breytingar urðu á listanum eftir að aðrar tölur voru kynntar klukkan 21 en þá höfðu rúmlega 3.100 atkvæði verið talin. Um 7.500 tóku þátt í prófkjörinu.
„Það yrðu vonbrigði ef þetta verður niðurstaðan. En ég var svo sem undir allt búin og við sem tökum þátt í prófkjöri við bara unum niðurstöðum prófkjöra, þau eru sú leið sem við Sjálfstæðismenn höfum til að velja á lista,“ segir Sigríður við Vísi.
Spurð hvort hún sé vongóð um að færast ofar á listanum eftir því sem fleiri atkvæði verða talin segir hún: „Ég á ekkert von á því að þetta breytist mikið eða ég hef bara ekki hugmynd um það. En þetta er bara niðurstaða, ég uni henni og er alveg afslöppuð með þessa niðurstöðu.“
Hóf kjörtímabilið sem ráðherra
Sigríður hefur verið fyrsti þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður á yfirstandandi kjörtímabili. Hún hóf kjörtímabilið sem dómsmálaráðherra ríkisstjórnarinnar áður en hún sagði af sér embætti vegna Landsréttarmálsins í mars 2019.
Sjá einnig: Sigríður Andersen stígur til hliðar.
Nú er hins vegar allt útlit fyrir að hún hverfi af þingi eftir kjörtímabilið. Sjálfstæðisflokkurinn náði samtals inn fimm mönnum á þing í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur eftir síðustu kosningar. Þrír þeirra voru í Reykjavík norður en tveir, þar á meðan Sigríður, í Reykjavík suður.
Ef hún hafnar í áttunda sæti í prófkjörinu og tekur fjórða sæti á lista er ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn þarf að bæta við sig ansi miklu fylgi til að hún eigi möguleika á að halda sér á þingi.
Tveir aðstoðarmenn gætu náð á þing
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra leiðir prófkjörsbaráttuna með hundrað atkvæða forskot á Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra þegar tæpur helmingur atkvæða hefur verið talinn.
Flokkurinn gæti þá náð tveimur nýliðum inn á þing ef listi prófkjörsins breytist ekki með næstu tölum og svipað hlutfall Reykvíkinga ákveður að greiða flokknum atkvæði sitt í komandi þingkosningum. Diljá Mist Einarsdóttir, aðstoðarmaður Guðlaugs, er í þriðja sæti í prófkjörinu og fengi því að öllu óbreyttu annað sæti í öðru Reykjavíkurkjördæminu. Það er nokkuð öruggt þingsæti hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík.
Hildur Sverrisdóttir, aðstoðarmaður ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra er þá í fimmta sæti í prófkjörinu eins og er. Henni yrði þá boðið þriðja sæti á lista í öðru kjördæmanna en það er baráttusæti hjá flokknum, sem náði þremur mönnum inn í Reykjavík norður í síðustu þingkosningum.