Finnland vann 1-0 sigur á Danmörku í fyrsta leik liðanna á EM í knattspyrnu í dag. Leikurinn fer í sögubækurnar fyrir margar sakir.
Um er að ræða fyrsta leik – og fyrsta sigur – Finna á stórmóti í knattspyrnu. Það fellur hins vegar í skuggann af atburðum fyrri hálfleiks þegar Christian Eriksen, leikmaður Danmerkur, hné niður eftir að hafa misst meðvitund.
Endurlífgunar tilraunir fóru fram á vellinum og sem betur fer báru þær árangur. Eftir að Eriksen var kominn til meðvitundar ræddi hann við samherja sína og var ákveðið að spila leikinn. Eriksen gat eflaust þakkað skjótum viðbrögðum fyrirliða síns, Simon Kjær, fyrir að ekki fór verr.
Leikurinn sjálfur var nokkuð jafn framan af fyrri hálfleik áður en Eriksen hneig niður. Heimamenn – leikið var á Parken á Kaupmannahöfn – voru hins vegar ívið sterkari aðilinn.
Respect.
— UEFA EURO 2020 (@EURO2020) June 12, 2021
Get well soon, Christian. #EURO2020 pic.twitter.com/SyWDfFAcXG
Leikurinn jafnaðist enn frekar út í síðari hálfleik en þegar klukkustund var liðin komust gestirnir yfir þökk sé marki Joel Pohjanpalo. Hann ákvað hins vegar að fagna marki sínu ekki um of vegna atburða leiksins.
Staðan samt sem áður orðin 1-0 Finnum í vil þegar 30 mínútur lifðu leiks.
Joel Pohjanpalo scored Finland's first goal at a major tournament but held back on the celebration. pic.twitter.com/krUIOSwlh3
— B/R Football (@brfootball) June 12, 2021
Rúmum stundarfjórðungi síðar fengu Danir gullið tækifæri til að jafna metin er vítaspyrna var dæmt eftir að Yussuf Poulsen féll í teignum.
Pierre-Emile Højbjerg fór á punktinn en spyrna hans var slök og Lukáš Hrádecký, markvörður Finna, greip boltann einfaldlega. Staðan enn 1-0 og þó Danir hafi sótt án afláts það sem eftir lifði leiks en allt kom fyrir ekki og Finnar unnu dýrmætan 1-0 sigur.

EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 verður einnig hægt að kaupa stakt á kr. 6.990 en fyrir viðskiptavini með aðra áskrift en ofangreindar frá Stöð 2 kostar áskriftin kr. 3.990.