Tilgangur ráðstefnunnar er að leiða saman sérfræðinga, stjórnmálamenn, fjölmiðlafólk og fræðimenn, eða í raun alla þá sem áhuga hafa á alþjóðamálum á Íslandi, til opinnar umræðu um helstu áskoranir og tækifæri Íslands í utanríkismálum.
Ráðstefnan samanstendur af fjórum málstofum þar sem framsögumenn flytja áhugaverð erindi og í kjölfarið fara fram líflegar pallborðsumræður með valinkunnum gestum.
Streymi má sjá hér og að neðan má kynna sér dagskrána.
Dagskrá
Ráðstefnustjóri: Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands
9:00 - 9:10 Setning ráðstefnu
Sabina Westerholm, forstjóri Norræna hússins
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands
9:10 - 9:20 Opnunarávarp
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra
9:20 - 10:15 Alþjóðasamvinna á tímum heimsfaraldurs
Erindi: Þórlindur Kjartansson, hagfræðingur og pistlahöfundur
Pallborð: Finnur Dellsén, dósent í heimspeki við Háskóla Íslands, Gylfi Magnússon, prófessor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður utanríkismálanefndar
Málstofustjóri: Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans
10:15 - 10:30 Kaffihlé
10:30 - 11:30 Falsfréttir og fjölmiðlar á Norðurlöndum: Baráttan gegn upplýsingaóreiðunni
Erindi: Morten Langfeldt Dahlback, blaðamaður hjá staðreyndarýnisstofunni Faktisk.no
Pallborð: Guðrún Hálfdánardóttir, blaðamaður, Jón Gunnar Ólafsson, nýdoktor við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs og Skúli B. Geirdal, verkefnastjóri hjá Fjölmiðlanefnd
Málstofustjóri: Sigurður Ólafsson, stjórnmálafræðingur
11:30 - 12:00 Léttur hádegisverður
12:00 - 12:50 Alþjóðasamvinna og utanríkismál: Hvert stefnir Ísland?
Pallborðsumræður með formönnum og fulltrúum stjórnmálaflokkanna í aðdraganda kosninga
Pallborð: Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, Jón Steindór Valdimarsson, alþingismaður Viðreisnar, Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs, Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, Silja Dögg Gunnarsdóttir, alþingismaður Framsóknarflokksins og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, varaformaður þingflokks Pírata
Málstofustjóri: Þórir Guðmundsson, ritstjóri fréttastofu Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar
12:50 - 13:00 Kaffihlé
13:00 - 13:50 Ísland og alþjóðasamstarf: Horft til framtíðar
Erindi: Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í alþjóðasamskiptum við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands
Pallborð: Aðalbjörg Egilsdóttir, ungmennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum, Bergur Ebbi, fyrirlesari og rithöfundur, Bergþóra Halldórsdóttir, alþjóðalögfræðingur, Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Kári Hólmar Ragnarsson, lektor við Lagadeild Háskóla Íslands
Málstofustjóri: Sveinn H. Guðmarsson, deildarstjóri upplýsinga- og greiningardeildar utanríkisráðuneytisins
13:50-14:00 Lokaorð: Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands