Sex mánaða fangelsi fyrir að stinga kærasta fyrrverandi kærustu Árni Sæberg skrifar 18. júní 2021 14:36 Héraðsdómur Reykjavíkur við Lækjartorg. Vilhelm Gunnarsson/Vísir Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann í sex mánaða fangelsi fyrir stórfellda líkamsárás og fíkniefnabrot.
Maðurinn var sakfelldur fyrir að hafa stungið kærasta fyrrverandi kærustu og barnsmóður sinnar ítrekað með dekkjasíls. Aðfaranótt laugardagsins 9. febrúar 2019 kl. 4:54 var lögreglu tilkynnt um hávaða og öskur sem barst frá stigagangi fjölbýlishúss í Reykjavík. Þar fóru fram mikil átök tveggja manna sem enduðu með því að annar þeirra stakk hinn margoft með dekkjasíls. Samkvæmt brotaþola í málinu var ástæða átakanna að gerandi hafi verið að áreita kærustu brotaþola. Sá sakfelldi hélt því fram fyrir dómi að kærasta brotaþola hafi boðið honum í heimsókn en símagögn staðfesta að þau höfðu átt í samskiptum um nóttina. Brotaþoli átti í fullu tré við gerandann og hafði náð honum undir þegar lögreglu bar að garði. Í aðkomuskýrslu lögreglu kemur fram að mennirnir hafi verið útataðir blóði þegar hún mætti á vettvang. Lögregla fann kassa fullan af hinum ýmsu fíkniefnum og stafrænni vog á árásarstaðnum. Árásarmaðurinn gekkst við því að vera eigandi fíkniefnanna fyrir dómi. Árásarmaðurinn hefur á bakinu óafplánaðan fangelsisdóm og því var honum dæmdur hegningarauki. Þá var honum gert að greiða fórnarlambi sínu 400.000 krónur í miskabætur.
Dómsmál Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira