Veiði hófst í Langá í gær í gullfallegu vatni og afrakstur fyrsta dagsins eru þrír laxar á land ásamt því að nokkuð sást af laxi á veiðistöðunum neðan við fossinn Skugga. Fyrsti laxinn kom úr Kerstapafljóti go svo veiddust tveir aðrir, einn í Strengjunum og annar í Dyrfljóti. Það var Jógvan Hansen sem átti stærsta lax dagsins en Gústaf Vífilsson tók þann fyrsta.
Fossinn við Skugga er vel laxgengur og einhverra hluta vegna kýs laxinn oft frekar að fara fossinn í góðu vatni heldur en að fara auðveldu leiðina upp laxastigann. Sá lax sem kemur fyrstur í ánna er oft fljótur að ganga upp og það er ekkert óvenjulegt að setja í laxa á veiðistöðunum neðan Sveðju þar sem veiðisvæðið sem er venjulega kallað "Fjallið" byrjar. Eins kemur ekkert á óvart þegar fyrstu laxarnir veiðast í lok júní á Fjallinu sjálfu. Það er venjulega Bjargstrengur sem gefur fyrstur veiðistaðana á því svæði.
Langá er í gullfallegu vatni og stækandi straumur næstu daga er vonandi að skila góðum göngum í ánna sem og aðrar ár á landinu.