Án þess að vera með allar tölur aftur í tímann á hreinu erum við nokkuð viss um að þetta sé besta opnun á vakt í Stóru Laxá fyrr og síðar. Alls var þrettán löxum landað á fyrstu vakt og töluvert líf var víða í ánni. Hvort þetta sé strax árangur af því að netin séu að stærstum hluta farin er erfitt að fullyrða en það verður að teljast nokkuð víst að svo sé.
Stærsti laxinn sem kom upp í morgun var 86 sm en annars var um ágætt bland tveggja ára laxa og eins árs laxa. Þessar fréttir koma afskaplega vel við veiðimenn sem síðustu daga hafa lítið annað heyrt en að fámennt sé af laxi í mörgum ánum. Við erum þó alveg pollróleg ennþá, þetta var eiginlega bara að byrja.