„Það leiðinlega við þetta er hversu ótrúlega mörg frábær lög ég hef tekið þátt í því að semja sem hafa síðan ekki komið út,“ segir Hildur um þetta fyrirkomulag. Komi lagið ekki út þá fær hún sem lagahöfundur ekkert greitt en verði lagið vinsælt getur þetta margborgað sig.
„Þú átt part af laginu. Þetta er svolítið eins og að kaupa lottómiða. Ef að laginu gengur vel þá getur þú lent í því að þessi eini dagur borgi mikið.“
Í nýjasta þættinum af hlaðvarpinu Bransakjaftæði fer Hildur yfir það hvernig þessi „workshop“ fara fram, hvernig er að semja tónlist með fólki í gegnum netið í covid og hvernig hægt væri að gera tónlistarumhverfið hérna á Íslandi betra.
Hildur er söngkona, lagahöfundur, textasmiður og klassískur sellóisti og hefur náð miklum árangri sem poppsöngkona á Íslandi en einnig hefur hún mikið verið að sækja hlustanir á Spotify erlendis.
Þáttinn má heyra í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.

Bransakjaftæði er hlaðvarpshluti Tónatals, sem miðar að því að efla þekkingu þeirra sem starfa við tónlist og stuðningsumhverfi þeirra. Bransakjaftæði er unnið í samvinnu við Útvarp 101 og Bergþór Másson er þáttarstjórnandi annarrar seríu. Tónatal er samstarfsverkefni ÚTÓN, Tónlistarborgarinnar Reykjavík, STEF, SFH og Íslandsstofu. Þættirnir birtast vikulega á Spotify og Vísi en jafnframt verða þeir spilaðir á Útvarp 101 á miðvikudögum klukkan 16.