Gerðu ítrekaðar tilraunir til að ræða við Hrauneigendur en var aldrei svarað Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 30. júní 2021 22:01 Birgir Ómar Haraldsson, framkvæmdastjóri Norðurflugs, segir fyrirtækið hafa gert ítrekaðar tilraunir til að ná í landeigendur Hrauns á Reykjanesi í upphafi eldgoss en aldrei hafa verið svarað, ekki fyrr en gerð var krafa um óhóflegt lendingargjald. Vísir/Vilhelm Framkvæmdastjóri Norðurflugs segir að þyrlufyrirtækið hafi ítrekað gert tilraunir til að ná í landeigendur Hrauns á Reykjanesi þegar eldgosið í Geldingadölum var nýbyrjað en aldrei borið erindi sem erfiði.
Sýslumaður hefur sett lögbann á lendingar þyrlufyrirtækisins við gosið að beiðni landeigenda eins og greint var frá í morgun. Norðurflug er eina fyrirtækið sem hefur verið bannað slíkt en nokkur fyrirtæki til viðbótar halda úti ferðum að gosstöðvunum. Birgir Ómar Haraldsson, framkvæmdastjóri Norðurflugs, sagði í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag að lögbannið hafi ekki sérstaklega komið á óvart. Erfitt hafi reynst að ná í landeigendur til að hafa samráð við þá um flugin þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. „Síðan fengum við símtal þar sem okkur var tjáð að það ætti að setja á okkur lendingargjald og í því samtali varð alveg ljóst að lendingargjaldið átti að vera mjög stór hluti af þeim brúttótekjum sem við höfum af hverjum farþega,“ segir Birgir. „Öllum okkar rökum var hent í ruslið“ Hann segir að gjaldið sem landeigendur hafi krafist hafi verið langt umfram allt sem viðgangist í ferðaþjónustu og segir stjórnendur Norðurflugs hafa staldrað við þegar sú staða kom upp. Hraunseigendur hafi krafist fasts gjalds fyrir ákveðið tímabil, sama hversu margar ferðir Norðurflug færi á því tímabili. „Fyrir utan það að þetta gjald sem upphaflega var talað um tók ekki einu sinni tillit til þess hvort við gætum flogið út af veðri eða ekki,“ segir Birgir. „Einnig minntumst við á það á þeim tíma hvort það væri ekki eðlilegt að gjaldið tæki til dæmis mið af því sem þekkt er á Reykjavíkurflugvelli um lendingargjald, þar sem er full þjónusta, og það var ekki hlustað á nein af okkar rökum. Þannig að við áttum allt eins von á því að þar sem öllum okkar rökum var hent í ruslið að þá myndi þetta enda svona,“ segir Birgir. Hafa íhugað að fljúga yfir gosið og lenda ekki Hann telur að landeigendurnir hafi farið fram úr sér í gjaldkröfunum, þar sem þær kröfur rímuðu ekki við neitt sem tíðkist hjá öðrum. „Í Geldingadölum eru þetta bara óbyggðir, og varla einu sinni beitarland, þar sem er engin þjónusta og það er ekki búið að fjárfesta neitt í þessu svæði. Það kom reyndar líka fram í yfirlýsingu Samtaka ferðaþjónustufyrirtækja að það að taka fyrir væntanlega uppbyggingu í framtíðinni er heldur ekki rétt viðmið.“ Birgir Ómar segir landeigendur hafa talað um eldgosið sem viðburð.Vísir Hann segir það hafa verið í umræðu innan Norðurflugs í nokkurn tíma að hætta lendingum á svæðinu, alla vega að hluta. Margir sem nýti sér þjónustuna séu orðnir fullorðnir og treysti sér oft ekki til að fara út og skoða svæðið. „Það hefur örlað á því að fólk hafi kvartað undan óþægindum við að vera á staðnum. Síðan hefur gosið breyst talsvert mikið þannig að við höfum bara verið að vega og meta það miðað við öryggi að fara ekki að lenda heldur bara fljúga yfir. Þetta hefur flýtt þeirri ákvörðun,“ segir Birgir. Þó sé einnig hópur sem vilji lenda og skynja gosið og náttúruna í öllu sínu veldi. Segir landeigendur vilja selja inn á eldgosið sem „viðburð“ Áður hefur komið fram að minnst þrjú eða fjögur önnur þyrlufyrirtæki lendi við gosstöðvarnar. Birgir segir þau fimm eða sex. „Að því sem við vitum til hefur ekki verið talað við öll þessi þyrlufyrirtæki, eitt fyrirtæki fékk samningsdrög sem Norðurflug fékk ekki. Hin fyrirtækin hafa heldur verið að draga úr lendingum svipað eins og við erum að hugsa,“ segir Birgir. Hann telur ólíklegt að niðurstaða náist í deilur Hrauneigenda og Norðurflugs. „Það er alltaf æskilegt að menn setji niður deilur. Hins vegar er það aldrei hægt ef það er bara enginn grundvöllur fyrir þeim. Þannig að ég held að það sé ofboðslega erfitt að meta hver verður niðurstaðan af þessu,“ segir Birgir. Hann segir að í samtölum við landeigendur hafi þeir lýst eldgosinu sem viðburði. Það þyki honum skjóta skökku við, enda sé um náttúruhamfarir að ræða. „Í þeim umræðum sem við höfum átt hefur allt viðmið um kostnað verið hent út af borðinu og það hefur verið talað um að það sé verið að selja aðgengi að viðburði. Ég verð að viðurkenna það fyrir okkur að við höfum ekki haft það hugarflug að náttúruhamfarir séu viðburður, við höfum bara ekki haft það enn þá,“ segir Birgir. „En ef náttúruhamfarir á að flokka sem viðburð, sem auðveldlega gætu farið mjög illa í þessu gosi sem öðrum gosum þá er það nýtt viðmið sem við eigum mjög erfitt að átta okkur á. Það er mjög erfitt að finna flöt á því hvað á að kalla viðburð, ef viðburð á að kalla.“ Hægt er að hlusta á viðtalið við Birgi í heild sinni í spilaranum hér að neðan.
Eldgos í Fagradalsfjalli Ferðamennska á Íslandi Jarðhræringar á Reykjanesi Reykjavík síðdegis Fréttir af flugi Grindavík Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis Innlent Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Innlent „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Innlent Fleiri fréttir Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í Miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Ísland sé með rauða spjaldið í námsárangri barna „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Sjá meira
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Innlent
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Innlent