Viðskipti innlent

Ráðinn for­stöðu­maður markaðs­mála hjá Play

Atli Ísleifsson skrifar
Steinar Þór Ólafsson hefur störf í dag.
Steinar Þór Ólafsson hefur störf í dag. Play

Steinar Þór Ólafsson hefur verið ráðinn forstöðumaður markaðsmála hjá flugfélaginu Play. Steinar hefur störf í dag, 1. júlí.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Play, en Steinar Þór kemur til PLAY frá Viðskiptaráði Íslands en áður starfaði hann sem markaðsstjóri Skeljungs og stýrði stafrænni markaðssetningu hjá N1. 

„Hann er einnig reglulegur pistlahöfundur á Rás 1 og í Viðskiptablaðinu og hefur flutt fyrirlestra víða um vinnustaðamenningu. Steinar Þór er með B.Sc. og MBA gráður frá Háskólanum í Reykjavík,“ segir í tilkynningunni.

Greint var frá því á dögunum að Nadine Guðrún Yaghi, fréttamaður á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni, hafi ráðið sig til Play þar sem hún mun starfa sem samskiptastjóri fyrirtækisins.


Tengdar fréttir

Nadine fer til Play

Nadine Guðrún Yaghi fréttamaður á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni hefur ráðið sig til flugfélagsins Play sem samskiptastjóri fyrirtækisins. Hún hættir störfum á fréttastofunni í sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×