Hitabylgjan sveif yfir Kanada og norðvesturhluta Bandaríkjanna í um fimm daga. Aldrei áður hefur hiti mælst jafn hár á þessu svæði. Hitinn náði mest tæpum 50°C í Bresku-Kólumbíu og fórust allt að fimm hundruð skyndilega vegna hitans. Þá kviknuðu margir gróðureldar vegna hitans og loga þeir enn í héraðinu.
Sérfræðingar hræðast þó að hitinn muni hafa enn verri og langvarandi afleiðingar á sjávardýr og vistkerfi við strendur Kanada.
Christopher Harley, sjávarlíffræðingur við Háskólann í Bresku-Kólumbíu, hefur reiknað það út að meira en milljarður sjávardýra kunnu hafa farist vegna hitans. Hann segir að vísbendingar hamfaranna megi sjá á ströndum Vancouver.
„Venjulega brakar ekki undan fótum manns þegar maður gengur á ströndinni. En núna eru svo margar tómar bláskeljar á ströndinni að maður kemst ekki hjá því að stíga á dauð dýr sem liggja á ströndinni,“ sagði Harley í samtali við fréttastofu Guardian.
Harley segir að hann hafi fundið yfirgnæfandi lykt af rotnandi sjávarfangi við ströndina. Þá hafi hann tekið eftir því að margar dauðu bláskeljanna voru eldaðar, vegna þess hve vatn sem safnaðist hafði í polla á ströndinni var óvenjulega heitt. Þá hafi sniglar, krossfiskar og skelfiskar legið dauðir í hrúgum á ströndinni.
Bláskeljar eru nokkuð harðar af sér og geta þolað hita langt upp að fjörutíu gráðum. Hrúðurkarlar eru enn harðari af sér og geta lifað allt upp í 45 stiga hita, að minnsta kosti í nokkra klukkutíma.
„Þegar hitinn er orðinn hærri en það geta þessi dýr ekki lifað það af,“ segir Harley.
Þessi fjöldadauði skelfiska gæti haft veruleg áhrif á vatnsgæðin við strendur Kanada en skelfiskar hjálpa til við að hreinsa sjávarvatn. Það leiðir til þess að sjórinn er nógu tær svo að sólargeislar nái niður til sjávargróðurs sem í kjölfarið skapar gott umhverfi fyrir aðrar tegundir sjávardýra.
„Á einum fermeter, sem bláskeljar hafa komið sér fyrir á, geta verið tugir, jafnvel hundruð annarra tegunda,“ segir Harley.
„Þú gætir komið þúsundum bláskelja fyrir á svæði sem er jafn stórt og eldavél. Og það eru hundruð ferkílómetrar af klettum við vesturströnd Kanada sem eru kjörin heimkynni fyrir bláskeljarnar. Fyrir utan það að við erum ekki að tala um eina tegund,“ segir Harley.
Bláskeljar eru meðal þeirra skelfiska sem hafa tiltölulega stuttan líftíma, og fjölga sér eftir um tvö ár. Önnur smá sjávardýr, eins og krossfiskar og aðrir skelfiskar lifa í áratugi og fjölga sér mun hægar. Því gæti verið að sumir stofnar sem halda til við vesturströnd Kanada hafi orðið fyrir verulegum skelli í hitabylgjunni.