Markaðurinn greinir frá þessu í morgun, en fyrr í sumar var sagt frá því að Ari Kristinn myndi fara í leyfi frá störfum sínum sem rektor HR eftir að hafa gegnt stöðunni frá ársbyrjun 2010. Var þá tekið fram að hann myndi taka við stjórn nýsköpunarfyrirtækis.
Sagt er frá því í blaðinu í dag að AwareGO, sem meðal annars sé í eigu Eyris Invest, stefni á að sækja fjármagn til hraðs vaxtar á næstu árum. Sé vonast til að fjöldi viðskiptavina fyrirtækisins muni margfaldast á komandi árum.
AwareGO hefur verið starfandi frá 2007 og sérhæfir sig í gerð myndbanda og kennsluhugbúnaðar sem nýtist fyrirtækjum og stofnunum við að auka netöryggi með þjálfun starfsfólks.
Starfsmenn AwareGo eru um þrjátíu talsins, en í hópi viðskiptavina eru meðal annars Credit Suisse, Barclays, General Electric, Mondelez Inc og Nethope.