Albert var í byrjunarliði AZ í dag sem lenti snemma undir í leiknum. Japaninn Kyogo Furuhashi, sem hefur komið frábærlega inn í lið Celtic eftir skipti sín frá Vissel Kobe í sumar, kom Celtic yfir eftir aðeins tólf mínútna leik.
1-0 stóð í hléi en Furuhashi lagði upp annað mark Celtic fyrir James Forrest eftir rúmlega stundarfjórðungsleik í síðari hálfleik. Skömmu síðar, á 72. mínútu, var Albert skipt af velli í liði AZ.
Þeir hollensku voru að elta allan leikinn og áttu erfitt með Celtic-liðið sem var líklegra til að bæta við marki heldur en AZ var til að minnka muninn. 2-0 fór leikurinn hins vegar og Celtic í góðri stöðu fyrir síðari leikinn í Hollandi á fimmtudaginn í næstu viku.
Liðið sem vinnur viðureignina fer í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.