ÍTF vill fleiri en tvö hundruð í hverju hólfi og grímurnar burt Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. ágúst 2021 13:30 Stjórn ÍTF vill að sóttvarnareglur á fótboltaleikjum verði rýmkaðar. Nú mega aðeins tvö hundruð vera í hverju sóttvarnahólfi og áhorfendum ber skylda til að bera grímu. Allur gangur er á því hvort áhorfendur sinni þeirri skyldu eða ekki. vísir/Hafliði Breiðfjörð Íslenskur toppfótbolti, hagsmunasamtök félaganna í efstu tveimur deildum karla og kvenna, telur rétt að endurskoða reglur um sóttvarnir á kappleikjum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá samtökunum. ÍTF leggur til að fjölga sóttvarnarhólfum og leyfa fleiri en tvö hundruð í hverju hólfi, afnema grímuskyldu, leyfa veitingasölu á leikjum og hvetur stjórnvöld til að innleiða COVID hraðpróf. Að mati ÍTF eru reglur stjórnvalda um sóttvarnir á leikjum of strangar, fyrir þeim lítill rökstuðningur og tímabært sé að endurskoða þær. Í yfirlýsingunni kemur fram að sum ákvæði sóttvarnareglnanna standist vart skoðun og séu í ósamræmi við almennar reglur í samfélaginu. Málflutningi sínum til stuðnings vísar ÍTF til reglna um framkvæmd leikja á Norðurlöndunum þar sem heimilt sé að selja í öll sæti á vellinum svo lengi sem áhorfendur framvísi bólusetningarvottorði. Þá tekur ÍTF undir með samráðshópi íslenskrar tónlistar sem sendi nýverið ákall til stjórnvalda þar sem óskað er eftir heimild til að leyfa allt að fimm hundruð manns í hverju sóttvarnahólfi. Yfirlýsing ÍTF
ÍTF leggur til að fjölga sóttvarnarhólfum og leyfa fleiri en tvö hundruð í hverju hólfi, afnema grímuskyldu, leyfa veitingasölu á leikjum og hvetur stjórnvöld til að innleiða COVID hraðpróf. Að mati ÍTF eru reglur stjórnvalda um sóttvarnir á leikjum of strangar, fyrir þeim lítill rökstuðningur og tímabært sé að endurskoða þær. Í yfirlýsingunni kemur fram að sum ákvæði sóttvarnareglnanna standist vart skoðun og séu í ósamræmi við almennar reglur í samfélaginu. Málflutningi sínum til stuðnings vísar ÍTF til reglna um framkvæmd leikja á Norðurlöndunum þar sem heimilt sé að selja í öll sæti á vellinum svo lengi sem áhorfendur framvísi bólusetningarvottorði. Þá tekur ÍTF undir með samráðshópi íslenskrar tónlistar sem sendi nýverið ákall til stjórnvalda þar sem óskað er eftir heimild til að leyfa allt að fimm hundruð manns í hverju sóttvarnahólfi. Yfirlýsing ÍTF Kæru viðtakendur. ÍTF hefur tekið virkan þátt í þeim aðgerðum sem beitt hefur verið gegn veirunni frá því hún skaut upp kollinum hér á landi. Nú er hinsvegar komið að ákveðnum þáttaskilum í baráttunni hérlendis þar sem verið er að skipuleggja aðgerðir til lengri tíma. Líkt og bent hefur verið á hefur þekking á hegðun veirunnar aukist auk þess sem bólusetning er orðin almenn. Í þessu ljósi telur ITF tímabært að endurskoða þær reglur sem í gildi eru varðandi framkvæmd kappleikja enda standist sum ákvæði þeirra vart skoðun og eru auk þess í ósamræmi við almennar reglur sem í gildi eru í samfélaginu. Stjórn ÍTF telur að núverandi regluverk stjórnvalda þrengi um of að framkvæmd knattspyrnuleikja. Takmarkanir séu of miklar og að fyrir þeim skorti rökstuðning. Einnig gæti mikils ósamræmis við reglur sem viðhafðar eru annarstaðar í samfélaginu t.d er varðar veitingasölu. Stjórn telur að svigrúm sé til staðar til þess að heimila fleiri en 200 manns í hverju sóttvarnarhólfi ef rétt er að málum staðið. Það er með öllu óásættanlegt að una við þessar takmarkanir sem og að ekki sé á neinn hátt tekið tillit til hvort um sé að ræða kappleik sem fram fer undir berum himni eða innandyra. Til stuðnings málflutningi sínum bendir ÍTF á framkvæmd leikja erlendis, t.d. á Norðurlöndum þar sem leyfilegt er að selja í öll sæti á vellinum að því gefnum að einstaklingurinn sé með bólusetningarvottorð. ÍTF tekur undir það „ákall“ sem samráðshópur íslenskrar tónlistar sendi á stjórnvöld fyrir stuttu, þar sem m.a. kemur fram að heimildir fáist fyrir allt að 500 manns í hverju sóttvarnarhólfi. Það þarf að finna leiðir til að lifa með veirunni og halda íþrótta- og menningarlífi gangandi. ÍTF telur það mjög mikilvægt að við finnum leiðir til að halda íþróttastarfi með eðlilegasta hætti á þessum COVID tímum. Það gerum við með regluverki sem er innan skynsamlegra marka og leggjum því til eftirfarandi: • Heimila veitingasölu á leikjum þar sem stjórnvöld hafa ekki sýnt fram á hvað ástæða liggur að baki þess að leyfa það ekki. Dæmi er um að fólk yfirgefi leikvelli í hálfleik og safnist saman í næstu verslun óháð því hvaða sóttvarnarhólfi það er í. Við teljum okkur geta boðið betur með því að hafa sér veitingasölu fyrir hvert hólf og því minni hætta á smit færist á milli sóttvarnarhólfa. • Fjölga hólfum og hafa lágmark 500 per hólf. Okkar íþrótt er spiluð utandyra og ætti ekki að vera sett undir sama hatt og viðburðir innandyra. Mannvirkin eru mismunandi en geta langflest leikandi tekið við fleira fólki án þess að 1 metra reglan sé brotin. • Þá viljum við einnig hvetja sjórnvöld til þess að innleiða COVID hraðpróf eins og víða þekkist í löndunum í kringum okkur. Með því að nota hraðpróf gætu allir þeir sem halda viðburði á Íslandi (íþróttakappleikir, tónleikar, leikhús ofl.) krafið gesti sína um neikvæða niðurstöðu sem ekki mætti vera eldri en 48 klst gömul, ásamt því að sýna vottorð um bólusetningu. Með þessu móti getum við notið íþrótta og menningar, sem er svo mikilvægur þáttur í tilveru margra Íslendinga, á eins öruggan máta og kostur er og reynt að lifað með veirunni. • Þá leggjum við til að grímuskylda sé afnumin á kappleikjum sem fara fram undir berum himni. ÍTF telur það í meira lagi furðulegt að íþróttir sem fara fram utandyra lúti sömu reglum og þær sem fara fram innandyra svo ekki sé harðar að orði kveðið. Eins og komið hefur fram í okkar málflutningi geta félög undir hatti ÍTF tryggt 1 metra reglu á milli ótengdra aðila og því ekki þörf á notkun grímu. Með kveðju, Stjórn Íslensk Toppfótbolti
Kæru viðtakendur. ÍTF hefur tekið virkan þátt í þeim aðgerðum sem beitt hefur verið gegn veirunni frá því hún skaut upp kollinum hér á landi. Nú er hinsvegar komið að ákveðnum þáttaskilum í baráttunni hérlendis þar sem verið er að skipuleggja aðgerðir til lengri tíma. Líkt og bent hefur verið á hefur þekking á hegðun veirunnar aukist auk þess sem bólusetning er orðin almenn. Í þessu ljósi telur ITF tímabært að endurskoða þær reglur sem í gildi eru varðandi framkvæmd kappleikja enda standist sum ákvæði þeirra vart skoðun og eru auk þess í ósamræmi við almennar reglur sem í gildi eru í samfélaginu. Stjórn ÍTF telur að núverandi regluverk stjórnvalda þrengi um of að framkvæmd knattspyrnuleikja. Takmarkanir séu of miklar og að fyrir þeim skorti rökstuðning. Einnig gæti mikils ósamræmis við reglur sem viðhafðar eru annarstaðar í samfélaginu t.d er varðar veitingasölu. Stjórn telur að svigrúm sé til staðar til þess að heimila fleiri en 200 manns í hverju sóttvarnarhólfi ef rétt er að málum staðið. Það er með öllu óásættanlegt að una við þessar takmarkanir sem og að ekki sé á neinn hátt tekið tillit til hvort um sé að ræða kappleik sem fram fer undir berum himni eða innandyra. Til stuðnings málflutningi sínum bendir ÍTF á framkvæmd leikja erlendis, t.d. á Norðurlöndum þar sem leyfilegt er að selja í öll sæti á vellinum að því gefnum að einstaklingurinn sé með bólusetningarvottorð. ÍTF tekur undir það „ákall“ sem samráðshópur íslenskrar tónlistar sendi á stjórnvöld fyrir stuttu, þar sem m.a. kemur fram að heimildir fáist fyrir allt að 500 manns í hverju sóttvarnarhólfi. Það þarf að finna leiðir til að lifa með veirunni og halda íþrótta- og menningarlífi gangandi. ÍTF telur það mjög mikilvægt að við finnum leiðir til að halda íþróttastarfi með eðlilegasta hætti á þessum COVID tímum. Það gerum við með regluverki sem er innan skynsamlegra marka og leggjum því til eftirfarandi: • Heimila veitingasölu á leikjum þar sem stjórnvöld hafa ekki sýnt fram á hvað ástæða liggur að baki þess að leyfa það ekki. Dæmi er um að fólk yfirgefi leikvelli í hálfleik og safnist saman í næstu verslun óháð því hvaða sóttvarnarhólfi það er í. Við teljum okkur geta boðið betur með því að hafa sér veitingasölu fyrir hvert hólf og því minni hætta á smit færist á milli sóttvarnarhólfa. • Fjölga hólfum og hafa lágmark 500 per hólf. Okkar íþrótt er spiluð utandyra og ætti ekki að vera sett undir sama hatt og viðburðir innandyra. Mannvirkin eru mismunandi en geta langflest leikandi tekið við fleira fólki án þess að 1 metra reglan sé brotin. • Þá viljum við einnig hvetja sjórnvöld til þess að innleiða COVID hraðpróf eins og víða þekkist í löndunum í kringum okkur. Með því að nota hraðpróf gætu allir þeir sem halda viðburði á Íslandi (íþróttakappleikir, tónleikar, leikhús ofl.) krafið gesti sína um neikvæða niðurstöðu sem ekki mætti vera eldri en 48 klst gömul, ásamt því að sýna vottorð um bólusetningu. Með þessu móti getum við notið íþrótta og menningar, sem er svo mikilvægur þáttur í tilveru margra Íslendinga, á eins öruggan máta og kostur er og reynt að lifað með veirunni. • Þá leggjum við til að grímuskylda sé afnumin á kappleikjum sem fara fram undir berum himni. ÍTF telur það í meira lagi furðulegt að íþróttir sem fara fram utandyra lúti sömu reglum og þær sem fara fram innandyra svo ekki sé harðar að orði kveðið. Eins og komið hefur fram í okkar málflutningi geta félög undir hatti ÍTF tryggt 1 metra reglu á milli ótengdra aðila og því ekki þörf á notkun grímu. Með kveðju, Stjórn Íslensk Toppfótbolti
Íslenski boltinn Pepsi Max-deild karla Pepsi Max-deild kvenna Lengjudeild karla Lengjudeild kvenna Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Dagur sló í gegn á sviðinu: „Gefið honum ríkisborgararétt“ Handbolti Segir að Ronaldo eigi þátt í óförum Rashford Enski boltinn Valskonur í Eyjum þegar öllu var frestað: „Brast nú út smá hlátur“ Handbolti Pavel rýfur þögnina: „Þetta kemur Keflavík ekkert við“ Körfubolti Ekki komið að kveðjustund hjá Gunnari Nelson Sport Fyrsti sitjandi forsetinn á Super Bowl Sport Franska stórliðið staðfestir komu Dags Handbolti Sonur Jordans handtekinn með kókaín Körfubolti Þunnskipuð og ísköld framlína ekki endilega stærsta vandamál Amorim Enski boltinn Útskýrði af hverju Napoli fékk ekki Garnacho Enski boltinn Fleiri fréttir Fer í Fram eins og pabbi sinn forðum Kristófer endurnýjar kynnin við Óskar Hrafn í KR Aron Sig nýr fyrirliði KR Fram lagði Íslandsmeistara Breiðabliks Heiðdís aftur í Kópavoginn Þjálfarar Vals komu ekki af fjöllum varðandi Katie Katie Cousins í Þrótt eftir að Valur taldi hana of dýra FIFA setti íslensk félög í bann án þess að láta vita „Það fór eitthvað leikrit í gang“ Ísfold Marý til liðs við Víking Reykjavíkurmeistarar KR byrja Lengjubikarinn á sigri Björn sagður rekinn vegna utanfarar í stórafmæli mömmu Róbert Orri semur við Víkinga Berglind Björg strax byrjuð að skora fyrir Blika Guy Smit frá KR til Vestra Ekki hrifinn af tvöfaldri sekt frá KSÍ: „Af hverju að gera það?“ Íslandsmeistararnir unnu Þungavigtarbikarinn Vigdís Lilja seld til Anderlecht KR vann fertugasta Reykjavíkurmeistaratitilinn annað árið í röð KR Reykjavíkurmeistari eftir öruggan sigur á Val Páll sækist ekki eftir endurkjöri hjá KR Norðurálsmótið fagnar fjörutíu ára afmæli í ár Atli Guðna auglýsir eftir strákum í fótbolta: „Markmiðið að hafa gaman“ Tvö af þremur félögum í úrslitaleik Reykjavíkurmóts kvenna eru frá Garðabæ Einbeittur brotavilji Víkinga ÍBV fær stóran og sterkan miðvörð Mætti Barcelona í byrjun mánaðar en spilar með Fram í Bestu í sumar Ætlar að taka annað fótboltasumar á „besta staðnum á Íslandi“ Ósáttur afi Sölva skildi ekki hvernig Arnar gat rekið hann í beinni Þróttur fær aðra úr Árbænum Sjá meira