Ribéry til liðs við nýliða Salernitana Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 6. september 2021 21:30 Franck Ribéry er enn í fullu fjöri. Francesco Pecoraro/Getty Images Hinn 38 ára Franck Ribéry hefur skrifað undir eins árs samning við nýliða ítölsku úrvalsdeildarinnar Salernitana.
Ribéry gengur til liðs við nýliðanna frá Fiorentina þar sem hann hefur leikið seinustu tvö tímabil, og var valinn leikmaður ársins fyrra tímabilið sitt hjá félaginu. Frakkinn er hvað þekktastur fyrir tíma sinn hjá þýska stórveldinu Bayern München þar sem hann lék í tólf ár frá 2007 til 2019. Með Bayern vann Ribéry þýsku deildina níu sinnum, þýska bikarinn sex sinnum og Meistaradeild Evrópu einu sinni svo eitthvað sé nefnt. Hann hafði verið orðaður við endurkomu til þýsku meistaranna í sumar, en nú er það ljóst að hann mun leika með Salernitana í ítölsku deildinni í vetur. Ribéry lék á sínum tíma 81 leik fyrir franska landsliðið og skoraði í þeim 16 mörk. Hann var í franska liðinu sem vann til silfurverðlauna á HM 2006. Árið 2013 hafnaði Ribéry í þriðja sæti í keppninni up Ballon d'Or, eða gullknöttinn. Margir vildu meina að hann hefði átt að sigra það ár en að keppnin hafi breyst í vinsældarkeppni og því hafi hann lent aftar í röðinni en Cristiano Ronaldo og Lionel Messi.
Ítalski boltinn Mest lesið Arnar rak Sölva í beinni: „Vil ekki sjá hann hérna“ Fótbolti Bað um nýtt herbergi í Zagreb Handbolti Hefði viljað fá miklu hærri upphæð fyrir Arnar frá KSÍ Fótbolti HM í dag: Allslaus leikmaður Kúbu með vindla til sölu Handbolti Björgvin um harmleikinn: „Hefði alveg getað verið ég“ Sport „Fíaskó“ og Norðmenn í lítt eftirsóttan hóp með strákunum okkar Handbolti Svona var fyrsti blaðamannafundur Arnars Fótbolti Spáir Íslandi sæti í undanúrslitum Handbolti Ísland sennilega ekki úr milliriðli en 14,2 prósent líkur á undanúrslitum Handbolti HM-barinn í Zagreb klár en Sérsveitin sparar kraftana Handbolti Fleiri fréttir „Hluti af mér sem persónu að hafa smá skap“ Svona var fyrsti blaðamannafundur Arnars Arnar rak Sölva í beinni: „Vil ekki sjá hann hérna“ Hefði viljað fá miklu hærri upphæð fyrir Arnar frá KSÍ Foden: Við erum ekki heimskir, titillinn er farinn Fimm marka veislur hjá bæði Barcelona og Bayern Arsenal kom til baka og vann slaginn um Norður-London Isak áfram í stuði og Moyes tapaði fyrsta leik Valur semur við norskan miðvörð Arnar ráðinn landsliðsþjálfari Amorim: Southampton mun kenna mér meira en Liverpool og Arsenal Klopp: Ég held partý ef Man City missir titlana Víkingar með ólöglegan leikmann á móti KR Slot segir að Forest sé í titilbaráttu Glazer-systkinin dvöldu á Vopnafirði í sumar Arftakar Linekers í Match of the Day kynntir Fenginn aftur til Chelsea og spilar ekki í kvöld Hákon og Mannone hetjurnar Freyr yfir sig stoltur: „Mikilvægt að sjá börnin sín vaxa í þessu lífi sem við höfum valið“ Nökkvi í höfn í Rotterdam og getur aftur labbað á kaffihús „Eitthvað annað og stærra en ég hef nokkurn tímann upplifað“ Littler skildi ekkert hvað Sir Alex sagði Karius mættur í þýsku B-deildina Þrettánda jafnteflið hjá Juventus Ásdís Karen orðin samherji Hildar í Madríd Malen mættur til Villa Hin efnilega Arnfríður Auður í raðir Vals Jafnt í toppslagnum í Skírisskógi Ótrúleg endurkoma heimamanna James bjargaði heimaliðinu Sjá meira