Skýrslutaka í Rauðagerðismálinu hefst í héraðsdómi í dag Hólmfríður Gísladóttir skrifar 13. september 2021 07:11 Angjelin Sterkaj, sem játað hefur að hafa orðið Armando Beqirai að bana, í dómsal í morgun. Aðalmeðferð í Rauðagerðismálinu svokallaða hefst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag og munu skýrslutökur standa yfir fram á fimmtudag. Málflutningur fer fram fimmudaginn 23. september næstkomandi.
Samkvæmt ákærunni í málinu var morðið á Armando Beqirai skipulagt og fylgst með ferðum hans kvöldið sem hann var myrtur. Armando lést af völdum skotsára sem hann hlaut á heila og brjóst þegar hann var skotinn níu sinnum fyrir utan heimili sitt að Rauðagerði 28. Angjelin Sterkaj hefur játað að hafa orðið Armando að bana laugardagskvöldið 13. febrúar en fjórir eru ákærðir í tengslum við morðið. Fjórir eru ákærðir í tengslum við morðið sjálft. Skotinn níu sinnum í höfuð og líkama Samkvæmt ákæru hófst atburðarásin með því að Murat Selivrada sýndi Claudiu Sofiu Coelho Carvalho tvær bifreiðar sem tilheyrðu Armando og var lagt við Rauðarárstíg 31. Claudia, sem var unnusta Sterkaj, fékk fyrirmæli um að fylgjast með bifreiðunum og senda skilaboð til Shpetim Qerimi í gegnum Messenger þegar önnur hvor bifreiðin yrði hreyfð. Varð Claudia við þessu og sendi skilaboðin þegar Armando ók frá Rauðarárstíg. Rétt fyrir miðnætti óku Shpetim og Angjelin að Rauðagerði. „Þegar bifreið Armando var ekið að heimili hans að Rauðagerði 28 ók ákærði Shpetim í humátt á eftir honum, hleypti meðákærða Angjelin úr bifreiðinni við hús nr. 28 og ók svo áfram nokkrar húsalengdir þar sem hann snéri bifreiðinni við og beið þar til meðákærði Angjelin gaf honum merki um að sækja sig. Þá ók ákærði Shpetim austur Rauðagerði og tók meðákærða Angjelin upp í bifreiðina í Borgargerði,“ segir í ákærunni. Í millitíðinni faldi Angjelin sig við bílskúrinn við Rauðagerði 28 en þegar Armando kom út eftir að hafa lagt bílnum skaut Angjelin hann níu sinnum í höfuð og líkama með 22. kalíbera Sig Sauer skammbyssu. Armando lést af skotsárum sínum en Angjelin hljóp út Rauðagerði og var sóttur af Shpetim. „Þeir óku svo út úr bænum og í Varmahlíð í Skagafirði, með viðkomu í Kollafirði þar sem ákærði losaði sig við skammbyssuna með því að henda henni í sjóinn,“ segir í ákærunni. Fjórtán handteknir í tengslum við umfangsmikla rannsókn lögreglu Fjórtán einstaklingar voru handteknir í tengslum við rannsókn málsins en fjórir ákærðir í tengslum við morðið; Angjelin, Claudia, Shpetim og Murat Selivrada, sem er sakaður um að hafa bent Claudiu á bifreiðarnar sem hún átti að fylgjast með. Málið var þingfest 25. maí síðastliðinn og þá játaði Angjelin en sagðist hafa verið einn að verki. Hin þrjú neituðu sök. Í kröfu sinni um farbann sagði saksóknari hins vegar að framburður Shpetim hefði verið ótrúverðugur en hann hefði viðurkennt að hafa ekið Angjelin í Rauðagerði en haldið því fram að hann vissi ekki hver hefði búið þar né hvað stæði til. Þá lá fyrir að 12. febrúar hefðu Shpetim og Claudia tekið við tösku frá Angjelin sem í var skotvopn. Shpetim hefði geymt töskuna en sagðist ekki hafa vitað hvað væri í henni. Ákæruvaldið benti einnig á að þegar Angjelin yfirgaf bifreiðina í Rauðagerði nóttina 13. febrúar hefði hann haldið á byssunni sem búin var hljóðdeyfi. Samsett væri hún um 40 sentímetrar. Þegar hann kom til baka hefði hann lagt byssuna á gólf bifreiðarinnar. Því væri ekki trúverðugt að Shpetim hefði ekki vitað hvað stóð til. Fjöldi einstaklinga af ýmsum þjóðernum var handtekinn í tengslum við málið. Farið fram á 68 milljónir króna í bætur Fjórmenningarnir eru krafðir um 68 milljónir króna í bætur en þrír aðrir hafa verið ákærðir í tengslum við málið; kærasta Angjelin, sem er grunuð um að hafa elt Armando kvöldið 13. febrúar, og tveir karlmenn frá Albaníu. Annar var vinur Armando en hinn var í bíl með Angjelin kvöldið sem Armando var myrtur. Armando var kvæntur Þórönnu Helgu Gunnarsdóttur, sem gekk með ófætt barn þeirra þegar hann var myrtur. Hún gerir kröfur um miskabætur fyrir sig, son sinn og þá ófætt barnið og um bætur fyrir missi framfæranda, samtals 43 milljónir. Foreldrar Armando krefjast sömuleiðis miskabóta, samtals 10 milljóna króna. Fertugur Íslendingur, Anton Kristinn Þórarinsson, var handtekinn í tengslum við rannsókn málsins og sætti meðal annars farbanni. Hann var ekki ákærður. Lögmaður hans sakaði lögreglu um að halda uppi „leiktjöldum“ löngu eftir að rannsóknin hefði veikt grunsemdir og sagði umbjóðanda sinn myndu leita réttar síns. Umræddur lögmaður, Steinbergur Finnbogason, var settur af sem verjandi Íslendingsins við rannsókn málsins og fékk stöðu vitnis.
Morð í Rauðagerði Reykjavík Dómsmál Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Fleiri fréttir BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar Sjá meira