Stytta opnunartíma Landsbankans en auka ráðgjafartíma Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. september 2021 13:51 Lilja Björk Einarsdóttir bankastjóri Landsbankans. Vísir/Vilhelm Landsbankinn hefur ákveðið að stytta afgreiðslutíma útibúa um klukkustund og verða þau framvegis opin frá 10-16. Um leið lengist sá tími sem fjármálaráðgjöf er í boði símleiðis eða á fjarfundum til klukkan 18 alla daga.
Frá breytingunum er greint á vef Landsbankans. Þar segir að í langflestum tilfellum noti fólk appið eða netbankann til að sinna fjármálunum en mikilvægi þess að hafa aðgang að vandaðri fjármálaráðgjöf, svo sem um íbúðalán, sparnað eða annað, sé óbreytt og hafi jafnvel aukist. „Með því að lengja þann tíma sem við veitum ráðgjöf til kl. 18 gerum við þjónustu okkar sveigjanlegri en í mörgum tilfellum hentar það fólki betur að sækja sér ráðgjöf utan hefðbundins afgreiðslutíma,“ segir á vef bankans. Útibú Landsbankans í Borgartúni.Vísir/Vilhelm Á höfuðborgarsvæðinu verður áfram hægt að fá reiðufjárþjónustu hjá gjaldkerum í Borgartúni 33 og Austurstræti 11. Í öðrum útibúum á höfuðborgarsvæðinu er hægt að taka út og leggja inn reiðufé í hraðbönkum. Gjaldeyrishraðbankar eru aðgengilegir í öllum útibúunum en aðeins verður hægt að skipta erlendum peningaseðlum í íslenskar krónur í Borgartúni og Austurstræti. Samhliða þessum breytingum hefur sjálfsafgreiðslutækjum í útibúum á höfuðborgarsvæðum verið fjölgað og þau eru aðgengileg allan sólarhringinn. „Starfsfólk útibúa er sem fyrr boðið og búið til að aðstoða viðskiptavini við að nýta sér sjálfsafgreiðslutæki, hraðbanka, netbankann og appið.“
Íslenskir bankar Mest lesið Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Viðskipti innlent Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Fleiri fréttir Innkalla pipar vegna eiturs Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Sjá meira