Neytendur

Inn­kalla hrís­grjón vegna skor­dýra­leifa

Telma Tómasson skrifar
Matvælastofnun bendir neytendum á að skila eða farga vörunni.
Matvælastofnun bendir neytendum á að skila eða farga vörunni. Vísir/Vilhelm

Skordýraleifar hafa fundist í einni framleiðslulotu af River-hrísgrjónum og varar Matvælastofnun neytendur við neyslu þeirra.

Á heimasíðu Mast segir að leifar af skordýrum hafi fundist í eins kílóa pakkningu af River-hrísgrjónum og hafi varan verið innkölluð í samráði við Heilbrigðiseftirlitið í Reykjavík. 

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga eða skila til verslunar, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Mast.

Hrísgrjónin sem um ræðir.Mast

Eingöngu er verið að innkalla eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: River Rice
  • Vöruheiti: River Rice White rice
  • Nettómagn: 1 kg
  • Vörunúmer: 430055
  • Best fyrir dagsetning: 02.06.2028
  • Innflytjandi: Danól, Fossháls 25, 110 Reykjav
  • Dreifing: Verslanir Samkaupa





Fleiri fréttir

Sjá meira


×