Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 16. september 2026 12:02 Úlfar segir uppfærsluna munu gjörbreyta þjónustu við notendur rafbíla til hins betra. Eigendur rafbíla lentu margir hverjir í vandræðum með að hlaða bílinn í gærkvöldi og í nótt þar sem fram fór uppfærsla á forriti Orku náttúrunnar. Forstöðumaður segir að notendur eigi að geta tekið gleði sína á ný í dag, um uppfærslu sé að ræða sem gjörbreyti forritinu.
Fréttastofu barst í gærkvöldi ábendingar frá eigendum rafbíla sem lentu í basli við að hlaða bíla sína vegna uppfærslu á forriti Orku náttúrunnar. Þá eru dæmi um rafbíla í heimahúsum sem ekki tókst að hlaða í nótt. Úlfar Linnet forstöðumaður einstaklings- og fyrirtækjalausna hjá Orku náttúrunnar segir um heildauppfærslu að ræða. „Ekki bara appinu heldur á öllu stjórnkerfinu fyrir hleðslustöðvarnar sem eru ríflega sex þúsund og þetta gekk í raun og veru bara glimrandi vel. Þetta er mjög flókið verkefni, mjög margar tölvur sem þurfa að tala saman en það var kannski eins og við bjuggumst við, svona einhver vandamál og það var einn vefþjónn sem var að stríða okkur eitthvað í gærkvöldi.“ Notendur hafi orðið varir við það, sem sé miður. Nú sé hinsvegar búið að finna hvert vandamálið er og unnið að lausn og segir Úlfar ólíklegt að notendur verði fyrir truflunum í dag. Orka náttúrunnar hafi gert sitt til að aðstoða notendur. „Við erum búin að senda fjölmörg SMS og tölvupósta og margir líka hreinlega bara komið til okkar og fengið aðstoð, fá aðstoð í síma. Langflestir náttúrulega græja þetta sjálfir með því að uppfæra í símanum hjá sér og setja inn kortaupplýsingar. En ég er alveg hundrað prósent á því að notendur muni sjá gæði í þessu, af því að þetta er stórt skref fram á við.“ Þannig hafi verið nauðsynlegt að ráðast í uppfærsluna á þessum tímapunkti. „Það sem felst í þessu er að gamla kerfið og sérstaklega stjórnbúnaðurinn var ekki nægilega fullkomið og ekki nægilega áreiðanlegt. Þannig við höfum væntingar um að þetta kerfi muni, þrátt fyrir að einhver hafi orðið fyrir vandræðum í byrjun, til lengri tíma skila miklu betri þjónustu og líka í raun tækifæri til að auka möguleika þess að þjónusta rafbílaeigendur og þá sem eru að hlaða. Þannig þetta er framtíðin, þetta kerfi.“
Hleðslustöðvar Bílar Neytendur Mest lesið Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Viðskipti innlent Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Viðskipti innlent Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Atvinnulíf Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Viðskipti innlent Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Viðskipti erlent Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Viðskipti innlent Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Neytendur Fleiri fréttir Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Innkalla svefntæki fyrir ungbörn vegna brunahættu Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Sveru dósirnar snúa aftur Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Bensínlítrinn hefur hækkað á ný „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Vara við skordýrum í chia-fræjum Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Ástandið minni á 2007 Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Kalla inn pylsur vegna prentvillu Breytingar á fyrsta farrými Innkalla te sem innihélt ál Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Sjá meira